Rússar gagnrýna harðlega áætlun Úkraínu og Evrópu um friðargæsluliða

Stjórn­völd í Moskvu kalla Úkraínu og stuðn­ings­þjóðir í Evrópu „stríðsöxul“ og vara við því að sam­komu­lag sem Evr­ópu­ríkin hafa gert um frið­ar­gæslu væri fjarri öllu því sem Rússar gætu sætt sig við til að binda enda á stríðið.

Rússar gagnrýna harðlega áætlun Úkraínu og Evrópu um friðargæsluliða

Í fyrstu yfir­lýs­ingu sinni eftir að banda­menn Úkraínu sögð­ust hafa sam­þykkt helstu örygg­is­á­byrgðir fyrir úkra­ínsk stjórn­völd á leið­toga­fundi í París, gagn­rýndu Rússar áætl­un­ina harð­lega í morgun.

Í yfir­lýs­ingu rúss­neskra stjórn­valda var áætl­unin kölluð „hern­að­ar­sinnuð“ og virt­ust slá á vonir um að hún myndi leiða til skjótra lykta átak­anna sem brátt hafa staðið yfir í fjögur ár.

Evr­ópskir leið­togar og sendi­full­trúar Banda­ríkj­anna til­kynntu fyrr í vik­unni að örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu myndu fela í sér eft­ir­lits­kerfi undir for­ystu Banda­ríkj­anna og evr­ópskt fjöl­þjóð­legt her­lið sem yrði sent á vett­vang ef vopna­hlé næð­ist.

„Allar slíkar sveitir og mann­virki verða álitin lög­mæt hern­að­ar­skot­mörk fyrir rúss­neska her­inn,“ sagði Maria Zakharova, tals­kona rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, í yfir­lýs­ingu.

Rússnesk stjórn­völd hafa ítrekað varað við því að þau myndu ekki sætta sig við að nokk­urt NATO-ríki sendi frið­ar­gæslu­lið til Úkraínu og hótað að slíkt lið gæti orðið fyrir skotárás Rússa á meðan alls­herj­ar­árás þeirra heldur áfram.

„Nýjar hern­að­ar­sinn­aðar yfir­lýs­ingar svo­kall­aðs banda­lags viljugra þjóða og stjórn­ar­innar í Kænu­garði mynda saman raun­veru­legan stríðsöxul,“ sagði Zakharova og kall­aði áætl­anir banda­manna Kænu­garðs „hættu­legar“ og „eyði­leggj­andi“.

Örygg­is­á­byrgðirVolody­myr Zelenskyy, for­seti Úkraínu, Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, og Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, und­ir­rita yfir­lýs­ingu um beit­ingu her­sveita í Úkraínu eftir vopna­hlé á leið­toga­fundi „banda­lags hinna stað­föstu“ um örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu

Vilja­yf­ir­lýs­ingin sem und­ir­rituð var í París myndi fela í sér að Bretland, Frakk­land og aðrir evr­ópskir banda­menn sendi her­lið til Úkraínu eftir að vopna­hlé kæm­ist á.

Nákvæmar upp­lýs­ingar um her­liðið og hvernig það myndi bregð­ast við liggja ekki fyrir og Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, seg­ist enn ekki hafa fengið „ótví­rætt“ svar um hvað þau myndu gera ef Rússar réð­ust aftur inn í landið.

Leið­togar Úkraínu hafa einnig sagt að erf­ið­ustu spurn­ing­unum í hvers kyns mögu­legu sam­komu­lagi um að binda enda á átökin svo sem spurn­ingum um yfir­ráð yfir land­svæðum í Donbas-hér­aði í austri og örlög Zaporizhzhia-kjarn­orku­vers­ins sem er á valdi Rússa, væri enn ósvarað. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár