Helen, sem er sjálf rithöfundur, er fædd í Venesúela. Hún flutti til Íslands fyrir 10 árum síðan og heillaðist af Vestfjörðum eftir að hafa dvalið í eitt ár á Þingeyri. Þar dvaldi hún og skrifaði í Blábankanum þar í bæ og eftir þá dvöl náði hún að sannfæra manninn sinn um að kaupa hús á Flateyri og flytja vestur, ákvörðun sem þau sjá ekki eftir.
„Ég var hluti af Ós pressunni og lærði þar mikið um bókaútgáfu. Ég hafði tekið eftir að það var ekki mikið um bækur frá Suður-Ameríku hér á landi og mig langaði að breyta því og ákvað því að stofna þessa bókaútgáfu. Þetta er lítil útgáfa, en ég er að reyna að gera eitthvað og auka flóruna í bókmenntaheiminum hér á landi. Þetta fer í báðar áttir, við gefum út íslenskar bækur í Venesúela og bækur þaðan hér,“ segir Helen.

Að sögn Helen …

















































Athugasemdir