Björg vill leiða Viðreisn

Björg Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður borg­ar­stjóra í tíð Einars Þor­steins­sonar, gefur kost á sér í odd­vita­vali Við­reisnar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Björg vill leiða Viðreisn

Björg Magn­ús­dóttir vill leiða lista Við­reisnar í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hún er sú þriðja til að gefa kost á sér til þess en Við­reisn­ar­fólk velur sér odd­vita í leið­toga­próf­kjöri í lok jan­úar.

Björg var aðstoð­ar­maður Einars Þor­steins­sonar, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann gegndi emb­ætti borg­ar­stjóra um skeið á kjör­tíma­bil­inu. Í til­kynn­ingu vegna fram­boðs­ins seg­ist hún hafa séð í því starfi hversu flókið og dýrt borg­ar­kerfið sé, á meðan „grunn­þjón­ustan hefur drabb­ast niður og traust til borg­ar­stjórnar er í algjöru rugli“.

„Ég vil vera hluti af nýrri kyn­slóð í borg­ar­stjórn sem er réttu megin við núllið og sinnir vel lög­bundnum verk­efnum og grunn­þjón­ustu. Setur fókus á leik- og grunn­skóla, stöðugt lóða­fram­boð, raun­hæf tæki­færi fyrir ungt fólk til að kaupa íbúð og ein­faldar eins og hægt er leik­reglur fyrir upp­bygg­ing­ar­að­ila hús­næðis og fólk sem ger­ist svo djarft að stofna fyr­ir­tæki eða veita þjón­ustu í borg­inni,“ segir hún í til­kynn­ing­unni.

Viðreisn á einn borg­ar­full­trúa í dag, Þórdísi Lóu Þór­halls­dóttur, sem gefur ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Flokk­ur­inn mælist með 9,7 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup sem fram­kvæmd var í des­em­ber. Það myndi tryggja flokknum tvö sæti í borg­ar­stjórn.

Auk Bjargar hafa þeir Aðal­steinn Leifsson, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og for­manns Við­reisnar, og Róbert Róberts­son, sér­fræð­ingur í stjórn­sýslu og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, gefið kost á sér. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár