Stöðva þurfi fölsun kynferðislegra mynda af börnum á tólinu Grok

Yfirvöld í Bret­landi og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins kalla eftir því að komið verði í veg fyrir að gervi­greind­ar­tólið Grok í eigu Elon Musks sé notað til að skapa fals­aðar kyn­ferð­is­legar myndir af börnum.

Stöðva þurfi fölsun kynferðislegra mynda af börnum á tólinu Grok
Elon Musk Er eig­andi gervi­greind­ar­tóls­ins Grok og sam­fé­lags­mið­ils­ins X. Mynd: AFP

Breska rík­is­stjórnin hefur kallað eftir því að X, sam­fé­lags­mið­ill Elon Musk, grípi til taf­ar­lausra aðgerða vegna fals­aðra kyn­ferð­is­legra mynda sem gervi­greind­ar­tólið Grok býr til af börnum.

„Það sem við höfum séð á net­inu und­an­farna daga er algjör­lega hræði­legt og óásætt­an­legt í sið­uðu sam­fé­lagi,“ sagði Liz Kendall tækni­ráð­herra Bret­lands í yfir­lýs­ingu. „X þarf að takast á við þetta taf­ar­laust.“

Gervi­greind­ar­tólið Grok stendur frammi fyrir sívax­andi alþjóð­legri gagn­rýni þar sem not­endum hefur verið leyft að búa til kyn­ferð­is­legar djúp­fals­aðar myndir af konum og börnum í gegnum svo­kall­aða „krydd­aða still­ingu“ eða spicy mode.

„Grok býður nú upp á „krydd­aða still­ingu“ sem sýnir kyn­ferð­is­legt efni með myndum sem líkj­ast börnum,“ sagði Thomas Regnier tals­maður hjá Evr­ópu­sam­bands­ins. „Þetta er ekki kryddað. Þetta er ólög­legt. Þetta er hræði­legt. Þetta er við­bjóðs­legt.“

Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur til­kynnt að hún fari nú „mjög alvar­lega“ yfir kvart­anir sem hafa borist vegna tóls­ins. Fram­kvæmda­stjórnin …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár