„Mun berjast fyrir frelsi okkar“

Græn­lenski for­sæt­is­ráð­herr­ann seg­ist „dap­ur“ yf­ir stig­mögn­un í ásælni Banda­ríkja­for­seta í inn­limun Græn­lands í Banda­rík­in.

„Mun berjast fyrir frelsi okkar“
Jens-Frederik Nielsen Forsætisráðherra Grænlands hefur ítrekað þurft að banda frá sér ágengni Bandaríkjaforseta.

 „Ég mun ávallt berjast fyrir frelsi okkar og rétti til að ákveða sjálf og móta framtíð okkar,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, í jólakveðju í skugga ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem ítrekaði í gær áform sín um að innlima Grænland í Bandaríkin.

„Við þurfum á því að halda vegna þjóðaröryggis. Við verðum að fá það,“ sagði Trump og bætti við að nýskipaður sendifulltrúi gagnvart Grænlandi, Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana, „vildi leiða áhlaupið“.

Evrópusambandið lýsti strax stuðningi við Danmörk og Grænlendinga. Og Jens-Frederik Nielsen gaf frá sér enn eina yfirlýsinguna gegn ásælni Trumps.

„Forseti Bandaríkjanna lýsti aftur yfir á blaðamannafundi í nótt ósk sinni um að yfirtaka Grænland. Með slíkum orðum er landið okkar smættað niður í spurningu um völd og öryggismál. Þannig sjáum við okkur ekki og þannig getum við á Grænlandi ekki né eigum að láta tala um okkur. Við erum þjóð með langa sögu, sterka menningu og lifandi lýðræði. Við erum land sem ber ábyrgð á eigin landsvæði og eigin framtíð. Landhelgi okkar og sjálfsákvörðunarréttur er tryggður í þjóðarétti og ekki er hægt að hunsa hann,“ sagði Nielsen í Facebook-færslu í morgun.

„Aftur: Grænland er landið okkar. Ákvarðanir okkar eru teknar hér,“ bætti hann við.

Nielsen sagði tregann blandast þakklæti.

„Takk til ykkar hér heima fyrir skýran stuðning og samstöðu sem hefur verið sýnd. Sú ró og virðing sem þið hafið mætt aðstæðunum með sendir skýr skilaboð um þjóð sem stendur föst á gildum sínum og ábyrgð,“ sagði Nielsen.

„Ég vil einnig þakka ríkisstjórnarleiðtogum og samstarfsaðilum um allan heim sem hafa skýrt og afdráttarlaust lýst yfir virðingu sinni fyrir Grænlandi, lýðræðislegum stofnunum okkar og grundvallarreglum þjóðaréttar. Sá stuðningur staðfestir að við hér heima stöndum ekki ein.“

Evrópusambandið lýsti í gær yfir „fullri samstöðu“ með Danmörku, sem er aðildarríki, eftir að Bandaríkin útnefndu Landry sendifulltrúa fyrir Grænland, samhliða yfirlýsingu hans um að bæta Grænlandi í Bandaríkin.

„Landhelgi og fullveldi eru grundvallarreglur þjóðaréttar,“ sögðu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Antonio Costa, forseti leiðtogaráðsins, á X.

„Þessar reglur eru ekki aðeins nauðsynlegar fyrir Evrópusambandið, heldur fyrir þjóðir um allan heim. Við stöndum í fullri samstöðu með Danmörku og grænlensku þjóðinni,“ sögðu þau.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsti sömuleiðis almennum stuðningi við rétt Grænlands og Danmerkur til fullveldis. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Sif Sigmarsdóttir
1
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...
Skyndiréttur með samviskubiti
6
GagnrýniTál

Skyndirétt­ur með sam­visku­biti

Tál er 29. bók­in sem Arn­ald­ur Ind­riða­son gef­ur út á 29 ár­um. Geri aðr­ir bet­ur. Bæk­urn­ar hans hafa selst í bíl­förm­um úti um all­an heim og Arn­ald­ur ver­ið stjarn­an á toppi ís­lenska jóla­bóka­flóðs­ins frá því fyrstu bæk­urn­ar um Er­lend og fé­laga komu út. Það er erfitt að halda uppi gæð­um þeg­ar af­köst­in eru svona mik­il – en jafn­vel miðl­ungs­bók eft­ir...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sif Sigmarsdóttir
3
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...

Mest lesið í mánuðinum

„Ég var lifandi dauð“
3
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár