Nefndarmaður Miðflokksins samþykkti tilboð frænda og vinnuveitanda

Nefnd­ar­maður Mið­flokks­ins á Akureyri sam­þykkti að ganga til samn­inga við vinnu­veit­anda sinn og frænda. Mánuði fyrr komst bæj­ar­lög­maður að þeirri nið­ur­stöðu að hún væri van­hæf gagn­vart honum vegna ætt­ar­tengsla.

Akureyri
Akureyri Bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins á Akureyri sam­þykkti að ganga til samn­inga við vinnu­veit­anda sinn. Mynd: Alma Mjöll

Fulltrúi Mið­flokks­ins í Umhverfis- og mann­virkja­ráði Akur­eyr­ar­bæjar, Bjarney Sig­urð­ar­dóttir, greiddi atkvæði um að ganga til samn­inga við vinnu­veit­anda sinn, Finn ehf., á fundi ráðs­ins í síð­ustu viku. Það gerði hún eftir að bæj­ar­lög­maður fann út að hún væri van­hæf gagn­vart eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins í öðru máli mán­uði fyrr, vegna ætt­ar­tengsla.

Bjarney seg­ist ekki hafa litið svo á að hún hafi verið van­hæf í mál­inu, þar sem um lægsta til­boð hafi verið að ræða.

Fulltrúi Sam­fylk­ing­ar­innar seg­ist orð­laus og full­trúi VG segir meiri­hlut­ann þurfa að hugsa sinn gang.

Lægsta tilboð hjá frænda varaformanns

Meiri­hluti umhverfis- og mann­virkja­ráðs Akur­eyr­ar­bæjar sam­þykkti á fundi sínum þann 10. mars síð­ast­lið­inn að ganga til samn­inga við Finn ehf. í tengslum við göngu­stíga og þver­anir við Borg­ar­braut. Tilboðið var sann­ar­lega það lægsta og hljóð­aði upp á 32 millj­ónir króna og var rúm­lega ell­efu millj­ónum krónum lægra en næsta til­boð.

Eigandi Finns ehf. …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár