Nefndarmaður Miðflokksins samþykkti tilboð frænda og vinnuveitanda

Nefndar­maður Miðflokksins á Akureyri samþykkti að ganga til samninga við vinnu­veitanda sinn og frænda. Mánuði fyrr komst bæjar­lögmaður að þeirri niður­stöðu að hún væri vanhæf gagnvart honum vegna ættar­tengsla.

Akureyri
Akureyri Bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins á Akureyri sam­þykkti að ganga til samn­inga við vinnu­veit­anda sinn. Mynd: Alma Mjöll

Fulltrúi Miðflokksins í Umhverfis- og mannvirkja­ráði Akureyrar­bæjar, Bjarney Sigurðar­dóttir, greiddi atkvæði um að ganga til samninga við vinnu­veitanda sinn, Finn ehf., á fundi ráðsins í síðustu viku. Það gerði hún eftir að bæjar­lögmaður fann út að hún væri vanhæf gagnvart eiganda fyrir­tækisins í öðru máli mánuði fyrr, vegna ættar­tengsla.

Bjarney segist ekki hafa litið svo á að hún hafi verið vanhæf í málinu, þar sem um lægsta tilboð hafi verið að ræða.

Fulltrúi Samfylkingarinnar segist orðlaus og fulltrúi VG segir meirihlutann þurfa að hugsa sinn gang.

Lægsta tilboð hjá frænda varaformanns

Meirihluti umhverfis- og mannvirkja­ráðs Akureyrar­bæjar samþykkti á fundi sínum þann 10. mars síðastliðinn að ganga til samninga við Finn ehf. í tengslum við göngu­stíga og þveranir við Borgar­braut. Tilboðið var sannarlega það lægsta og hljóðaði upp á 32 milljónir króna og var rúmlega ellefu milljónum krónum lægra en næsta tilboð.

Eigandi Finns ehf. …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár