„Slæm framtíð“ NATO ef hann fær ekki hjálp með Íran

Donald Trump vill að banda­lags­ríki Banda­ríkj­anna í NATO hjálpi til með afleið­ingar Írans­stríðs­ins.

„Slæm framtíð“ NATO ef hann fær ekki hjálp með Íran
For­seta­hjónin Donald Trump, hér að baki eig­in­konu sinnar, Melania Trump, við kom­una á flug­vell­inum í Palm Beach. Hann dvaldi á aðsetri sínu í Mar-a-Lago í Flórída um helg­ina. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í dag að fram­tíð NATO væri „mjög slæm“ ef banda­lags­ríki Banda­ríkj­anna hjálp­uðu ekki til við að opna Hor­mússund, mik­il­væga olíu­flutn­inga­leið sem Íran hefur í raun lokað í stríð­inu í Mið­aust­ur­löndum.

Í stuttu við­tali við The Financial Times sagði Trump að á sama hátt og Banda­ríkin hefðu aðstoðað Úkraínu í stríð­inu við Rússland, ætl­að­ist hann til þess að Evrópa hjálp­aði til varð­andi Hor­mússund, en lokun þess hefur valdið gríð­ar­legum hækk­unum á orku­verði um allan heim.

„Það er bara við­eig­andi að þeir sem hagn­ast á sund­inu hjálpi til við að tryggja að ekk­ert slæmt ger­ist þar,“ sagði Trump og hélt því fram að Evrópa og Kína væru mjög háð olíu frá Persaflóa, ólíkt Banda­ríkj­unum.

„Ef engin við­brögð koma eða ef þau eru nei­kvæð, þá held ég að það verði mjög slæmt fyrir fram­tíð NATO,“ bætti hann við.

Banda­ríkin hófu stríð gegn Íran 28. febr­úar með full­tingi Ísraels og hafa gefið mis­mun­andi og stundum mis­vísandi skýr­ingar á stríðs­rekstr­inum. Ein skýr­ingin hefur verið aðgerð til að stöðva mögu­lega þróun Írans á kjarn­orku­vopnum, en áður hafði Trumps sagst hafa gjör­eyði­lagt getu þeirra til þess í loft­árásum í júní í fyrra. Önnur skýr­ingin hefur verið áhersla á stjórn­ar­skipti, en Trump-stjórnin hefur farið fram og til baka með hana. Sú þriðja er skýr­ing Trumps að hann hafi haft á til­finn­ing­unni að Íran myndi gera árás á Banda­ríkin. Fjórða skýr­ingin er að tæki­færi hafi skap­ast til að drepa marga æðstu ráða­menn Írans í einni árás, þar sem upp­lýs­ingar hefðu feng­ist um að þeir væru sam­an­komnir.

Hver sem skýr­ingin er hafði Banda­ríkja­stjórn ekki sam­ráð við banda­menn sína um stríðið, eða þá Banda­ríkja­þing, heldur ein­ungis Ísrael.

„Við erum með nokkuð sem heitir NATO,“ sagði Trump í við­tal­inu við Financial Times, um banda­lagið sem hann hefur oft gagn­rýnt. „Við höfum verið mjög almenni­legir. Við þurftum ekki að hjálpa þeim með Úkraínu. Úkraína er í þús­unda mílna fjar­lægð frá okkur... En við hjálp­uðum þeim. Nú sjáum við til hvort þeir hjálpi okkur. Því ég hef lengi sagt að við munum vera til staðar fyrir þá en þeir munu ekki vera til staðar fyrir okkur. Og ég er ekki viss um að þeir yrðu til staðar.“

Trump hefur dregið veru­lega úr stuðn­ingi sínum við Úkraínu og sagt Banda­ríkin græða á því að selja Úkraínu vopn.

Þegar hann var spurður um hvaða hjálp þyrfti, sagði Trump „hvað sem þarf“. Hann bætti við að banda­menn ættu að senda skip sem hreinsa upp tund­ur­dufl, en Evrópa á mun fleiri slík en Banda­ríkin.

Trump gaf í skyn að hann vildi evr­ópskar sér­sveitir eða aðra hern­að­ar­að­stoð til að útrýma Írönum sem væru að „valda ónæði“ í Persaflóa með drónum og tund­ur­duflum. „Þeir eiga ekk­ert eftir nema að valda smá vand­ræðum í sund­inu en þetta fólk hagn­ast á því og það ætti að hjálpa okkur að gæta þess. Við munum hjálpa þeim. En þau ættu líka að vera þarna. Það þarf eig­in­lega marga til að vakta fáa.“

Trump sagð­ist búast við því að Kína myndi hjálpa til við að opna sundið áður en hann ferð­ast til Peking í lok þessa mán­aðar á leið­toga­fund með Xi Jinping, í sinni fyrstu ferð til Kína á öðru kjör­tíma­bili sínu.

„Ég held að Kína ætti líka að hjálpa því Kína fær 90 pró­sent af olíu sinni frá sund­inu,“ sagði Trump. Að bíða fram að leið­toga­fund­inum væri of seint, sagði hann. Þá sagð­ist hann lík­lega þurfa að fresta fund­inum með Xi Jinping.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár