Tímalína: Skotárásin á Bondi-ströndinni

Hátíð­ar­höld í til­efni ljósa­há­tíðar gyð­inga stóðu sem hæst þegar þung­vopn­aðir feðgar stigu út úr bíl sínum og hófu skot­hríð á Bondi-strönd­inni á sunnu­dag. Þá hófst ein mann­skæð­asta skotárás í sögu Ástralíu. Fimmtán eru látnir og tugir til við­bótar særðir.

Tímalína: Skotárásin á Bondi-ströndinni
Herða reglur Leið­togar Ástralíu hafa sam­þykkt að herða vopna­lög­gjöf­ina eftir að árás­ar­menn drápu 15 manns á hátíð gyð­inga á Bondi strönd­inni. Um er að ræða verstu fjölda­skotárás í ára­tugi sem yfir­völd hafa for­dæmt sem gyð­inga­hatur og hryðju­verk. Mynd: SAEED KHAN / AFP

Ástralía stendur frammi fyrir einni mann­skæð­ustu fjölda­skotárás í sögu lands­ins eftir að faðir og sonur hófu skot­hríð á mann­fjölda sem hafði safn­ast saman á hátíð gyð­inga á Bondi-strönd­inni.

Með því að nota vitn­is­burði, myndefni frá almenn­ingi og opin­berar yfir­lýs­ingar hefur AFP sett saman tíma­línu yfir árás­ina á sunnu­dag þar sem 15 manns létu lífið og tugir særð­ust. 

Stuðningsmaður Íslamska ríkisins

Naveed Akram, sem er 24 ára, vakti fyrst athygli áströlsku leyni­þjón­ust­unnar árið 2019, þegar hann var tán­ingur í Sydney og umgekkst stuðn­ings­menn Íslamska rík­is­ins.

Anthony Albanese for­sæt­is­ráð­herra sagði í dag að tveir sam­verka­menn Naveeds hefðu síðar verið fang­els­aðir en hann hefði ekki verið tal­inn alvar­leg ógn og að mestu horfið af rat­sjá lög­regl­unnar.

Það var þar til hann tók þátt í skotárás með 50 ára gömlum föður sínum, Sajid Akram, sem beind­ist að hópi gyð­inga sem hafði safn­ast saman til að fagna ljósa­há­tíð.

…
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár