„Snjóflóðið mun koma þaðan“

Össur Skarp­héð­ins­son þáver­andi umhverf­is­ráð­herra segir Heiðar Guð­brands­son, snjóat­hug­un­ar­mann á Súðavík, hafa til­kynnt sér að hættu­matið væri rangt. Rétt fyrir snjó­flóðið fór Össur að skoða aðstæður og gerði í kjöl­far athuga­semd við hættu­matið.

„Snjóflóðið mun koma þaðan“
Össur Skarp­héð­ins­son Var umhverf­is­ráð­herra þegar snjó­flóðið á Súðavík féll. Mynd: hordur sveinsson

„Hann var klár­lega búinn að vara við þessu,“ segir Össur Skarp­héð­ins­son um Heiðar Guð­brands­son, snjóat­hug­un­ar­maður í Súðavík. Össur var umhverf­is­ráð­herra þegar snjó­flóðið á Súðavík féll en í aðdrag­anda þess hafði hann verið í sam­skiptum við Heiðar sem tjáði honum að hættu­mat væri rangt. 

Heiðar hringdi í Össur skömmu fyrir jólin 1994. „Hann tjáði mér þær áhyggjur sínar að það væru ekki réttar áherslur í eft­ir­liti og við­bún­aði,“ segir Össur í við­tali við Heim­ild­ina. 

„Þegar við höfðum átt tvö sím­töl bað ég um að fá að sjá snjó­flóða­mat á þessu svæðu,“ segir Össur. „Það leit þannig út að ég vildi sjá þetta sjálfur.“ Hann segir að á þessum tíma hafi hættu­mat fallið undir félags­mála­ráðu­neytið en snjóat­hug­un­ar­menn voru á vegum umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. 

„Snjóflóðið mun koma þaðan“ 

Össur fór vestur eftir að hann fékk snjó­flóða­matið í hendur. Þar sýndu full­trúar úr sveita­stjórn­inni honum svæðin sem féllu undir matið þar sem þau töldu mestar líkur …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár