Þekking, gögn og reynsla lítil í aðdraganda snjóflóðsins á Súðavík

Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar um snjó­flóðið á Súðavík kom út í dag. Þar kemur fram að þegar hættu­mat var unnið á síð­ari hluta níunda ára­tugs­ins var einna helst hægt að styðj­ast við snjó­flóðið sem þar varð árið 1983. Ekki voru öll hús inn á hættu­mat­skorti.

Skýrslan afhent
Skýrslan afhent Rann­sókn­ar­nefnd afhenti for­seta Alþingis skýrsl­una í dag. Mynd: Golli

Skýrsla um snjó­flóðið á Súðavík hefur nú verið birt í tveimur bindum. Blaða­manna­fundur stendur nú yfir þar sem skýrslan er kynnt. 

Nefnd­inni er ekki ætlað að draga fólk til ábyrgðar. 

Fram kemur að lítil þekk­ing hafi verið til staðar þegar hættu­mat var unnið á Súðavík árið 1988. Þá var einna helst stuðst við snjó­flóð sem varð á Súðavík árið 1983. 

Lög um ofanflóð

Í skýrsl­unni kemur fram að lög um varnir gegn snjó­flóðum og skriðu­föllum frá árinu 1985 hafði ekki verið breytt þegar snjó­flóðið á Súðavík.

Í skýrsl­unni segir: „Á árinu 1985 voru einnig sett fyrstu sér­lögin í land­inu um varnir gegn ofan­flóðum, þ.e. snjó­flóðum og skriðu­föllum (ofan­flóða­lögin 1985). Stjórn­sýslu­leg ábyrgð á mála­flokknum hvíldi hjá félags­mála­ráð­herra sam­kvæmt lög­unum.“

„Ofan­flóða­lögin 1985 voru stutt og til­tölu­lega skýr varð­andi fyr­ir­komu­lag varna og við­bún­aðar gegn ofan­flóðum af hálfu rík­is­ins og tóku engum breyt­ingum á ára­tugnum sem leið …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár