Japanir skila tveimur pöndum til Kína

Pönd­urnar Lei Lei og Xiao Xiao, sem Kína lán­aði Japan í tákn­rænum „pöndu-erind­rekstri“, eiga nú að snúa heim. Ákvörð­unin kemur á sama tíma og sam­skipti Peking og Tókýó hafa kólnað veru­lega, meðal ann­ars eftir að jap­anski for­sæt­is­ráð­herr­ann lét í veðri vaka að Japan gæti gripið til hern­að­ar­að­gerða yrði Taívan fyrir árás.

Japanir skila tveimur pöndum til Kína
Tvíburar Pönd­urnar Lei Lei og Xiao Xiao eru tví­burar. Nú er áætlað að pönd­urnar verði sendar heim mán­uði áður en láns­tími þeirra rennur út í febr­úar. Mynd: Wikimedia / 江戸村のとくぞう

Tvær pöndur í dýra­garði í Tókýó verða sendar aftur til Kína í jan­úar, að sögn borg­ar­yf­ir­valda í Tókýó. Það gæti þýtt að Japan verði án þess­ara ást­sælu dýra í fyrsta sinn í hálfa öld.

Dýrin, sem eru áber­andi svört og hvít, voru lánuð sem hluti af „pöndu-erind­rekstri“ Kína og hafa táknað vin­áttu milli Peking og Tókýó frá því að diplómat­ísk sam­skipti voru end­ur­reist árið 1972.

Japan hefur nú aðeins tvær pöndur, Lei Lei og Xiao Xiao, í dýra­garð­inum í Ueno-hverf­inu í Tókýó.

En nú er áætlað að tví­burarnir verði sendir heim mán­uði áður en láns­tími þeirra rennur út í febr­úar, að sögn borg­ar­yf­ir­valda í Tókýó, sem reka Ueno-dýra­garð­inn.

Hér­aðs­stjórn Tókýó hefur óskað eftir því að þessi gríð­ar­lega vin­sælu spen­dýr, sem laða að sér fjölda fólks, fái að vera áfram í dýra­garð­inum en Kína féllst ekki á það, sam­kvæmt við­skipta­dag­blað­inu Nikkei.

Í sept­em­ber á …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár