Machado úr felum og heitir því að binda enda á „harðstjórn“ í Venesúela

„Ég kom til að taka við verð­laun­unum fyrir hönd venes­ú­elsku þjóð­ar­innar og ég mun fara með þau aftur til Venes­ú­ela þegar rétti tím­inn kemur,“ sagði Nóbels­verð­launa­haf­inn María Corina Machado í morgun. Óvíst var hvort hún myndi ferð­ast til Óslóar til að taka við verð­laun­unum en hún hefur verið í felum síðan í jan­úar.

Machado úr felum og heitir því að binda enda á „harðstjórn“ í Venesúela

Nóbels­verð­launa­haf­inn María Corina Machado mun gera sitt besta til að snúa aftur til Venes­ú­ela til að binda enda á „harð­stjórn­ina“ í land­inu, sagði hún þegar hún steig fram í sviðs­ljósið í Ósló í morgun eftir að hafa verið í felum í næstum ár.

Machado lét sig hverfa í jan­úar eftir að hafa ögrað stjórn Nicolás Maduro for­seta. Óvissa var um hvort hún myndi taka við Nóbels­verð­launum sínum í per­sónu en hún birt­ist fyrst á hót­els­völum í norsku höf­uð­borg­inni snemma í morgun þar sem stuðn­ings­menn hennar fögn­uðu henni. 

Á blaða­manna­fundi þakk­aði hún þeim sem „hættu lífi sínu“ til að koma henni til Óslóar. Ekki er ljóst hvernig hún komst til Noregs eða hvernig hún mun snúa aftur eftir að yfir­völd í Venes­ú­ela sögðu að hún yrði talin flótta­maður ef hún yfir­gæfi landið.

Fyrir blaða­manna­fund­inn hafði hún sagt við frétta­menn fyrir utan norska þingið að hún myndi gera sitt …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár