Draugar fortíðar ganga aftur

Draugar fortíðar ganga aftur
Ragnar Jónasson og Katrín Jak­obs­dóttir eru höf­undar Franska spít­al­ans. Mynd: Baldur Kristjánsson
Bók

Franski spít­al­inn

Höfundur Katrín Jakobsdóttir, Ragnar Jónasson
Veröld
316 blaðsíður
Niðurstaða:

Rislítil glæpasaga þar sem lítil hætta virðist vera á ferð.

Gefðu umsögn

Franski spít­al­inn er sjálf­stætt fram­hald Reykja­víkur (2022) eftir glæpa­sagnatvíeykið Ragnar Jónasson og Katrínu Jak­obs­dóttur. Lesendur end­ur­nýja kynnin við Sunnu sem starfar nú sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu eftir að hafa leyst ráð­gátu fyrri bók­ar­innar. Sunna hefur áhuga á að afhjúpa aðra stór­frétt en er þess í stað beðin um að fara austur á land að vinna greina­bálk um sjáv­ar­út­vegs- og sam­göngu­mál á lands­byggð­inni. Hún fer því til Fáskrúðs­fjarðar þar sem hún kynn­ist ýmsum per­sónum. Þar á meðal er sagn­fræð­ing­ur­inn Gísli sem er að skoða áhrif franskra sjó­manna á for­tíð stað­ar­ins. Það er svo Gísli sem til­kynnir Sunnu að Björn, rit­ari bæj­ar­stjór­ans, hafi fund­ist á franska spít­al­anum á Hafn­ar­nesi þar sem hann hafði fyr­ir­farið sér. Er það kveikjan að frek­ari rann­sóknum Sunnu fyrir austan.

Spítali sem er ekki spítali

Það er ekk­ert sem bendir til þess að um morð hafi verið að ræða en þó er Sunna full­viss um að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorbjörn Rúnarsson skrifaði
    3 stjörnur af 5
    Oft er gott að lesa/heyra miðlungs, eða jafnvel slæma dóma um bók og lesa hana svo. Ég hafði bara gaman af henni, kom mér á óvart miðað við þennan dóm og dóm stallnanna í Kiljunni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár