Svona ætla Ástralir að banna börnum að nota samfélagsmiðla

Ástralía mun banna ung­lingum undir sextán ára aldri að nota sam­fé­lags­miðla frá og með mið­nætti í kvöld. Þetta er fyrsta slíka aðgerð í heim­inum sem miðar að því að losa börn úr viðjum ávana­bind­andi skruns á miðlum á borð við Facebook, Instagram og TikTok.

Svona ætla Ástralir að banna börnum að nota samfélagsmiðla
Facebook, Instagram, Snapchat og TikTok eru meðal þeirra sam­fé­lags­miðla sem falla undir bannið, ásamt streym­isveitum eins og Kick og Twitch. Mynd: SAEED KHAN / AFP

Áströlsk stjórn­völdu banna á mið­nætti ein­stak­lingum yngri en 16 ára að nota miðla á borð við Facebook og TikTok. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er gert í heim­inum og vekur mik­inn áhuga allra þeirra sem hafa áhyggjur af skað­legum áhrifum sam­fé­lags­miðla.

Opin­berir aðilar um allan heim fylgj­ast með til að sjá hvort Ástralíu tak­ist að hafa hemil á tækniris­unum en spurn­ingar eru uppi um hvernig bannið muni virka í fram­kvæmd.

Hér er það sem við vitum um hvernig Ástralía mun fram­fylgja nýju tak­mörk­un­unum.

Sanna aldur

Sumir af stærstu sam­fé­lags­miðlum heims verða að fjar­lægja alla not­endur yngri en 16 ára í Ástralíu. Þetta hefur áhrif á hund­ruð þús­unda ung­linga en Instagram eitt og sér hefur sagst hafa um 350.000 ástr­alska not­endur á aldr­inum 13 til 15 ára.

Ekki þurfa allir Ástralir að sanna aldur sinn, aðeins þeir sem grun­aðir eru um að …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár