Sakar Össur um „mannfyrirlitningu“

Formaður Vinstri grænna segir að nýleg ummæli Össurs Skarp­héð­ins­sonar um flokk­inn séu „skepnu­skapur í eigin þágu“. Með þeim reyni hann að beina athygl­inni frá vand­ræðum rík­is­stjórn­ar­innar.

Sakar Össur um „mannfyrirlitningu“
Svandís Svav­ars­dóttir Mynd: Golli

„Mann­fyr­ir­litn­ingin er alltaf fyrsta verk­færi Össurar – og hluti af þeirri lít­ils­virð­ingu er að tala um flokka sem ‘ræfil’ eða ‘skúffu’,“ skrif­aði Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna á Facebook í dag.

Tilefnið eru ummæli Össurs Skarp­héð­ins­sonar, fyrr­ver­andi for­manns og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, um að sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson gæti orðið bjarg­vættur VG, sem féll af þingi í síð­ustu kosn­ingum og mælist enn utan þings.

Sagði Stefán búa yfir meiri kjörþokka en Svandís

„Stefán Pálsson er lík­lega skarpasti kut­inn í ræfl­inum sem eftir er af skúffu VG. Hæfilega skrít­inn, mælsk­ari en and­skot­inn, krull­hærður - sem er plús - og sér­lega fimur í að verja vondan mál­stað,“ skrif­aði Össur á Facebook í gær.

Sagði hann þetta eftir frammi­stöðu Stefáns í Silfrinu í gær­kvöldi, sem hann taldi und­ir­strika mann­kosti og kjör­þokka hans umfram Svandísi Svav­ars­dóttur og Guðmund Inga Guð­brands­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og eft­ir­menn Katrínar Jak­obs­dóttur.

„Þetta kom allt vel fram í Silfrinu í kvöld. Hann er maður að mínu skapi. VG þarf óvænta leiki til að lifa af og finna for­ystu­fólk með meiri kjör­þokka en Svandís og Guð­mundur Ingi sem bók­staf­lega slátr­uðu VG með ótrú­legum afleikjum á hel­spretti flokks­ins í blá­lok síð­ustu rík­is­stjórnar. Bæði vilja þó leiða leif­arnar í næstu kosn­ingum,“ segir hann. 

Össur vildi hins vegar meina að Stefán væri ekki í „flokks­eig­enda­klíkunni“ og að VG væri á hraðri leið fyrir „end­an­legan ætt­ern­is­stapa“ auk þess að hafa tapað tengslum við raun­veru­leik­ann. „Lík­leg­ast er að Svandís verði klöppuð upp til að veita tætl­unum sem eftir eru af VG síð­ustu nábjarg­irnar,“ skrif­aði Össur.

„Skepnuskapur í eigin þágu“

Svandís hefur nú svarað þessum hörðu orðum og segir þau ein­kenn­ast af „mann­fyr­ir­litn­ingu“ og „skepnu­skap“ í eigin þágu. Með þeim sé Össur að beina athygl­inni frá vand­ræðum rík­is­stjórn­ar­innar og þar með Sam­fylk­ing­ar­innar. 

„Þetta orð­færi segir miklu meira um hann sjálfan en þau sem orðin bein­ast að. Um leið beinir hann athygl­inni frá vand­ræðum rík­is­stjórn­ar­innar og þar með Sam­fylk­ing­ar­innar. Erindi Össurar er skepnu­skapur í eigin þágu.

Stefán Pálsson er frá­bær, og það vita allir sem á hann hlusta. Og VG á áfram erindi, hvort sem Össuri líkar það betur eða verr. Og það erindi snýst um sam­fé­lagið.“

Í síð­asta Þjóð­ar­púlsi Gallups mæld­ist VG með 3,2% fylgi en Sam­fylk­ingin 31,1% fylgi. Þá mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 58,9%, 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Svandís er sennilega ekki, frekar en aðrir blindingjar farin að átta sig á mannfyeirlitningunni sem svik Vinstri Grænna fólu í sér. Svakalega á hún bágt.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár