Rússar juku dróna- og flugskeytaárásir á Úkraínu í nóvember

Árásir Rússa hafa valdið raf­magns­leysi hjá tug­þús­undum íbúa Úkraínu, en Rússar hafa beint spjótum sínum að raf­orku­kerfi lands­ins fjórða vet­ur­inn í röð.

Rússar juku dróna- og flugskeytaárásir á Úkraínu í nóvember
Daglegt brauð Árásir rúss­neska hers­ins á inn­viði Úkraínu eiga sér stað dag­lega. Mynd: AFP

Rússar juku dróna- og flug­skeyta­árásir sínar á Úkraínu í nóv­em­ber, sam­kvæmt grein­ingu AFP sem birt var í dag. Á sama tíma þrýsti Hvíta húsið á stjórn­völd í Kænu­garði að sam­þykkja frið­ar­sam­komu­lag sem talið er hag­stætt fyrir rúss­nesk stjórn­völd.

Yfirvöld í Moskvu skutu alls 5.660 flug­skeytum og lang­drægum drónum á Úkraínu í síð­asta mán­uði, að því er fram kemur í dag­legum skýrslum frá úkra­ínska flug­hernum. Það er tveggja pró­senta aukn­ing frá fyrri mán­uði.

Árásir Rússa hafa valdið raf­magns­leysi hjá tug­þús­undum íbúa Úkraínu, en Rússar hafa beint spjótum sínum að raf­orku­kerfi lands­ins fjórða vet­ur­inn í röð. Úkraínsk stjórn­völd og banda­menn þeirra segja það vera mark­vissa aðferð til að brjóta niður almenna borg­ara í Úkraínu.

Úkra­ínski flug­her­inn sagði að Rússar hefðu skotið 5.445 lang­drægum drónum og 215 flug­skeytum, sem er þriggja pró­senta aukn­ing á ómönn­uðum loft­förum, en tveggja pró­senta fækkun á flug­skeyta­árásum.

Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, sagði í vik­unni að aukin umsvif …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár