Vextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Stýri­vext­ir Seðla­bank­ans eru nú 7,25% eft­ir lækk­un sem pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans birti í morg­un. All­ir nefnd­ar­menn voru sam­mála ákvörð­un­inni.

Vextir lækkaðir um 0,25 prósentustig
Ásgeir Jónsson Peningastefnunefnd, sem seðlabankastjóri fer fyrir, birti vaxtaákvörðun sína í morgun. Mynd: Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina.

Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,25%.

Yfirlýsing peningastefnunefndar var birt rétt í þessu á vef Seðlabankans.

„Verðbólga var 4,3% í október og jókst um 0,2 prósentur frá mánuðinum á undan,“ segir í tilkynningunni. „Hún hefur haldist í um 4% í tæpt ár. Undirliggjandi verðbólga sýnir áþekka þróun.“

Í tilkynningunni kemur fram að hægt hafi á vexti innlendrar eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar og vísbendingar um viðsnúning í efnahagsumsvifum verði æ greinilegri.

„Þar vegur þungt röð áfalla sem hafa skollið á útflutningsgreinum“

„Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans virðist spennan í þjóðarbúinu horfin og útlit er fyrir að það hægi meira á hagvexti en áður var talið. Þar vegur þungt röð áfalla sem hafa skollið á útflutningsgreinum en ekki síður það umrót sem hefur skapast á innlendum lánamarkaði í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár