Þessi grein birtist fyrir rúmlega 2 mánuðum.

18 greindust með tegund ónæmra sýkla í fyrra

Al­mennt er lít­ið um sýkla­ónæmi á Ís­landi en sótt­varn­ar­lækn­ir seg­ir þó mik­ið starf óunn­ið.

18 greindust með tegund ónæmra sýkla í fyrra
Guðrún Aspelund Sóttvarnalæknir segir mikið starf óunnið vegna sýklaónæmis.

Metfjöldi greindist á Íslandi með ónæmu sýklana karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE) í fyrra, eða 18 manns. Almennt er þó lítið um sýklalyfjaónæmi á Íslandi en það er talið ein heilsta heilbrigðisógn mannkyns.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni á vef Embættis landlæknis í dag.

Dagurinn í dag er helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) og hefst vitundarvika um sýklalyfjaónæmi á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) einnig í dag.

„Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum,“ segir í tilkynningu sóttvarnalæknis.

Þá verður árlegt málþing sóttvarnalæknis að þessu sinni helgað hjúkrunarheimilum þar sem notkun sýklalyfja og byrði af völdum ónæmra sýkla eru mest hjá elstu aldurshópunum. Málþingið verður þriðjudaginn 18. nóvember á Hrafnistu á Sléttuvegi en einnig verður boðið upp á þátttöku með fjarfundi.

Lítið miðað við Evrópu

Í tilkynningunni segir að notkun sýklalyfja hjá fólki á Íslandi árið 2024 hafi verið svipuð og undanfarin ár en um þriðjungur landsmanna hafi fengið að minnsta kosti eina sýklalyfjaávísun á árinu. „Flestum sýklalyfjum var ávísað utan sjúkrahúsa, oftast af heimilislækni. Á Íslandi er notkun breiðvirkra sýklalyfja almennt lítil sem er jákvætt þar sem breiðvirk sýklalyf stuðla frekar að auknu sýklalyfjaónæmi. Notkun sýklalyfja er mest hjá yngstu og elstu aldurshópunum,“ segir í tilkynningunni.

„Sýklalyfjaónæmi í bakteríum hér á landi er almennt lítið miðað við mörg ríki ESB/EES, þó aukning hafi orðið á vissum gerðum ónæmra sýkla,“ segir ennfremur. „Sérstakar áhyggjur vekur aukning á karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE) á milli ára, en 18 einstaklingar greindust með CPE í fyrsta sinn árið 2024, sem er metfjöldi. Algengasta gerð tilkynningarskyldra ónæmra sýkla eru sýklar sem mynda breiðvirka beta-laktamasa (ESBL/AmpC), en þessi gerð ónæmra sýkla greinist oftast hjá eldra fólki, sérstaklega konum, og sérstaklega í tengslum við þvagfærasýkingar.“

Rannsókn á hjúkrunarheimilum hérlendis sýndi að um 7% íbúa tóku eitt eða fleiri sýklalyf á þeim tíma sem rannsóknin fór fram. Yfir helmingur af öllum sýklalyfjum voru gefin í fyrirbyggjandi tilgangi, sem er hátt í samanburði við önnur ESB og EES ríki. Þar af var nær helmingur til að fyrirbyggja þvagfærasýkingar.

Spítalasýkingar algengar í Evrópu

Þá segir í tilkynningu sóttvarnalæknis að árlega fái 4,3 milljónir sjúklinga á Evrópska efnahagssvæðinu að minnsta kosti eina sýkingu sem tengist heilbrigðisþjónustu – „spítalasýkingu“ – og að margar séu vegna ónæmra sýkla.

„Sýking sem tengist heilbrigðisþjónustu er sýking sem einstaklingur fær meðan á dvöl eða meðferð í heilbrigðiskerfinu stendur og var ekki til staðar við komu,“ segir í tilkynningunni. „Þetta getur til dæmis verið á sjúkrahúsi, á heilsugæslu eftir inngrip, á hjúkrunarheimili, eða í tengslum við heimahjúkrun. Dæmi um algengar sýkingar sem tengjast heilbrigðisþjónustu eru þvagfærasýkingar (oft tengdar þvagleggjum), lungnabólga (til dæmis tengd öndunarvél), blóðsýkingar (tengdar æðaleggjum) og skurðsárasýkingar.“

Á hverjum tíma eru um 7% sjúklinga á sjúkrahúsum í ESB og EES, eða einn af hverjum 14, með að minnsta kosti eina sýkingu sem tengist heilbrigðisþjónustu. Á hjúkrunarheimilum eru um 3% íbúa með að minnsta kosti eina slíka sýkingu.

„Miklar vonir eru bundnar við innleiðingu nýlegrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda“

„Ein af hverjum þremur örverum sem finnast í sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu eru bakteríur sem eru ónæmar fyrir mikilvægum sýklalyfjum, sem takmarkar möguleika til að meðhöndla sýkingar og á hverju ári deyja yfir 35.000 manns í ríkjum ESB/EES vegna sýkinga af völdum sýkla sem eru ónæmir gegn sýklalyfjum. Dánartíðni vegna þessara sýkinga er sambærileg við samanlagða dánartíðni inflúensu, berkla og HIV/alnæmis á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Loks segir að þó staðan á Íslandi sé að mörgu leyti góð hvað varðar notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi sé mikið starf óunnið. „Miklar vonir eru bundnar við innleiðingu nýlegrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda,“ en sóttvarnarlæknir tekur einnig þátt í alþjóðlegum verkefnum til þess að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Erla Björg hættir sem ritstjóri: „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“
3
Innlent

Erla Björg hætt­ir sem rit­stjóri: „Stund­um hef ég þurft að minna mig á æðru­leys­ið“

Erla Björg Gunn­ars­dótt­ir er hætt sem rit­stjóri á frétta­stofu Sýn­ar. Í færslu á sam­fé­lags­miðl­um seg­ir hún að í ár­anna rás hafi hún unn­ið eins og hún gat með sí­breyti­leg­an far­veg þar sem hún hafi stund­um þurft að minna sig á æðru­leys­ið og hverju hún gæti stjórn­að. „Eft­ir marga slíka hringi kem­ur að þeim tíma­punkti að það er best að kveðja og hleypa nýj­um kröft­um í bar­átt­una.“

Mest lesið í mánuðinum

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“
5
Innlent

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörð­inni“

Und­ir­skrifta­söfn­un er haf­in til að mó­mæla fram­kvæmd­um í Skafta­felli. Fund­ur um breyt­ing­ar fram­kvæmd­anna var hald­inn um há­sum­ar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ seg­ir íbúi á svæð­inu. Íbú­ar ótt­ast að sam­keppn­is­hæfni muni minnka ef fyr­ir­hug­uð ferða­g­ist­ing rís. „Ég sé ekki ann­að en að þetta auki tekj­ur og at­vinnu á svæð­inu,“ seg­ir Pálm­ar Harð­ar­son, sem stend­ur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Advent­ur­es.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár