Zelensky boðar yfirhalningu spilltra orkufyrirtækja Úkraínu

Úkra­ínu­for­seti boðar umfangs­miklar umbætur í rík­is­reknum orku­fyr­ir­tækjum eftir að upp komst um umtals­verð fjár­drátt­ar­mál sem hafa vakið reiði almenn­ings og áhyggjur banda­manna.

Zelensky boðar yfirhalningu spilltra orkufyrirtækja Úkraínu
Gegn spill­ingu Zelensky segir að algjört gagn­sæi og heið­ar­leiki í orku­iðn­að­inum sé for­gangs­at­riði. Mynd: AFP

Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, til­kynnti í gær um yfir­haln­ingu rík­is­rek­inna orku­fyr­ir­tækja eftir að spill­ing­ar­mál í hjarta geirans, sem Rússar hafa kom­ist nálægt með að granda með kerf­is­bundnum árásum, vakti mikla reiði almenn­ings.

Rann­sak­endur ljóstr­uðu því upp að jafn­virði nærri 13 millj­arða króna hefði verið stolið úr orku­geira lands­ins, sem olli hneykslun í sam­fé­lagi þar sem árásir Rússa hafa valdið geig­væn­legum raf­magns­trufl­unum.

Zelensky fyr­ir­skip­aði tveimur ráð­herrum að segja af sér vegna svikanna og setti á við­skipta­þving­anir gegn fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga sínum, sem nafn­greindur var sem helsti skipu­leggj­andi máls­ins.

„Við erum að hefja yfir­haln­ingu á lyk­il­fyr­ir­tækjum í orku­iðn­að­inum,“ sagði Zelensky á X. „Jafn­hliða fullri end­ur­skoðun á fjár­hags­legum rekstri þeirra á að end­ur­nýja stjórn þess­ara fyr­ir­tækja.“

Hann kall­aði eftir nýrri eft­ir­lits­nefnd hjá Energoatom – rík­is­fyr­ir­tæk­inu sem sér um kjarn­orku og er í miðju hneyksl­is­ins – „innan viku“ til að tryggja „full­komna yfir­haln­ingu á stjórn fyr­ir­tæk­is­ins“.

Þá hvatti hann einnig til skjótrar ráðn­ingar nýs …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár