Evrópuþingið samþykkir 90 prósent minnkun losunar

ESB hef­ur þeg­ar dreg­ið úr los­un um 37 pró­sent mið­að við ár­ið 1990 og stefn­ir nú að 90 pró­sent minnk­un.

Evrópuþingið samþykkir 90 prósent minnkun losunar
Loftmengun Stór hluti kolefnislosunar Íslendinga kemur frá samgöngum. Mynd: Golli

Evrópuþingið samþykkti í gær markmið Evrópusambandsins um minnkun kolefnislosunar fyrir árið 2040 og studdi þar með í stórum dráttum þá vandasömu málamiðlun sem aðildarríkin náðu í síðustu viku.

Þingmenn í Brussel greiddu atkvæði með 379 gegn 248 og samþykktu 90 prósenta samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda miðað við árið 1990 – sem er lykiláfangi á leið 27 ríkja sambandsins að kolefnishlutleysi um miðja öldina.

Í samræmi við það sem umhverfisráðherrar ESB samþykktu eftir maraþonviðræður í síðustu viku, skildu þeir þó eftir svigrúm fyrir breytingar og bættu við ýmsum ívilnunum sem umhverfissinnar hafa gagnrýnt harðlega.

„Þetta loftslagsmarkmið er 90 prósenta samdráttur í kolefnismengun á pappírnum eingöngu og fullt af svo mörgum glufum og fyrirvörum að það mun líklega skila mun minni árangri,“ sagði Eva Corral, baráttukona Greenpeace ESB í loftslagsmálum.

Frá og með árinu 2036 verður leyfilegt að alþjóðlegar kolefniseiningar telji með allt að fimm prósentum af 2040-markmiðinu, að sögn þingsins, sem gæti dregið úr hlutfalli samdráttar innanlands.

Þingmenn studdu að fresta um eitt ár, til 2028, innleiðingu á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir eldsneytisbrennslu í byggingum og vegasamgöngum, þekkt sem ETS2 – kerfi sem Norðurlöndin styðja en Pólland og Ungverjaland eru andsnúin.

Þeir sögðu einnig að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætti að meta framvindu í átt að losunarmarkmiðinu á tveggja ára fresti og leggja til breytingar ef nauðsyn krefur, þar á meðal á markmiðinu sjálfu.

Þingið þarf nú að semja við aðildarríkin um endanlega útgáfu textans.

ESB er á eftir Kína, Bandaríkjunum og Indlandi hvað varðar losun, en hefur verið gengið lengst af stóru mengunarvöldunum í skuldbindingu til aðgerða í loftslagsmálum. ESB hefur þegar dregið úr losun um 37 prósent miðað við árið 1990.

Ísland stefnir að því að minnka „samfélagslosun“ um 41% fyrir lok þessa áratugar, miðað við árið 2005, eftir leiðréttingu umhverfisráðherra á markmiði Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu, en áður hafði verið miðað við 55% minnkun fyrir misskilning.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
5
ViðtalLífið á Grensás

Þörf á að styrkja end­ur­hæf­ingu barna veru­lega

Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á milli ráðu­neyta þeg­ar kem­ur að end­ur­hæf­ing­ar­mál­um. Hún seg­ir að dæmi séu um að ungt fólk í end­ur­hæf­ingu hafi ekki feng­ið þá þjón­ustu sem það vildi. Mönn­un­ar­vandi sé ástæða þess að stofn­an­ir dragi sam­an eða loki á sumr­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár