Miðflokkurinn tekur stökk í stuðningi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sekkur enn og nálg­ast Mið­flokk­inn, sem stekkur upp um tæp fimm pró­sentu­stig.

Miðflokkurinn tekur stökk í stuðningi
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Formaður Mið­flokks­ins boð­aði áherslu á heil­brigða skyn­semi og þjóð­rækni í ræðu sinni á lands­fundi flokks­ins í októ­ber. Mynd: Golli

Sam­fylk­ingin mælist með lang­mestan stuðn­ing allra stjórn­mála­flokka á Íslandi í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallups, sem Rík­is­út­varpið greinir frá. 

Ári eftir þing­kosn­ingar, þar sem Sam­fylk­ingin fékk 20,9% fylgi, mælist hún með 31,9% fylgi í könnun Gallups. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir hins vegar enn fylgi og fer niður í 17,6%.

Mest ris er á Mið­flokknum, sem stekkur upp í 16,3% fylgi eftir að hafa mælst með 11,8% fyrir mán­uði í sömu könnun. Mest mæld­ist hann með 18,7% fylgi í stakri könnun í lok sept­em­ber 2024, sem leiddi þó aðeins til 12,1% stuðn­ings í þing­kosn­ing­unum. 

Könnun Gallup 1. október–2. nóvember 2025
Samfylkingin
31,9%
Sjálfstæðisflokkurinn
17,6%
Miðflokkurinn
16,3%
Viðreisn
13,5%
Flokkur fólksins
5,9%
Framsókn
5,5%
Píratar
3,9%
Vinstri græn
2,6%
Sósíalistaflokkurinn
2,3%
Heimild: Gallup. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.

Mið­flokk­ur­inn hefur und­an­farið lagt aukna áherslu á þjóð­rækni og það sem for­maður flokks­ins kallar heil­brigða skyn­semi, en undir það fellir hann áherslu á að draga úr komum flótta­manna, sem þó hefur fækkað mjög síð­ustu miss­erin, og and­stöðu við nán­ara sam­starf við Evr­ópu­sam­bandið. Á sama tíma hefur Sig­mundur lagt til að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti fái boð til Íslands og honum verði jafn­vel veitt verð­laun.

Píratar mæl­ast nú með 1 þing­mann við 3,9% fylgi, sem er aukn­ing úr 2,9% í síð­ustu könnun.

Hvorki Vinstri græn né Sós­í­alistar ná vopnum sínum á ný. Sós­í­alistar, sem fengu 4% í kosn­ing­unum, mæl­ast aðeins með 2,3% fylgi í kjöl­far hall­ar­bylt­ingar fyrr á árinu. Vinstri græn fá stuðn­ing 2,6% í könnun, sem er aukn­ing um 0,3% miðað við alþing­is­kosn­ing­arnar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu