Það sem við vitum um Gazasamkomulagið

Fyrsti áfangi frið­ar­á­ætl­unar á Gaza felur í sér að Hamas mun sleppa tutt­ugu lif­andi gíslum og Ísraelar sleppa 3.700 Palest­ínu­mönnum á næstu sól­ar­hringum. Gert er ráð fyrir að samn­ing­ur­inn verði form­lega und­ir­rit­aður í hádeg­inu.

Það sem við vitum um Gazasamkomulagið

Donald Trump til­kynnti á mið­viku­dag að Ísrael og Hamas hefðu náð sam­komu­lagi um fyrsta áfanga vopna­hlés í Gaza, eftir nokkra daga óbeinna við­ræðna í Egypta­landi.

Katar, sem ásamt Egypta­landi, Banda­ríkj­unum og Tyrk­landi kom að miðlun sam­komu­lags­ins, sagði það vera „fyrsta stig vopna­hléssamn­ings­ins fyrir Gaza sem muni leiða til enda­loka stríðs­ins, lausnar ísra­el­skra gísla og palest­ínskra fanga og inn­flutn­ings mann­úð­ar­að­stoðar“.

„ALLIR gísl­arnir verða leystir mjög fljót­lega og Ísrael mun draga her sinn til baka að sam­kominni línu sem fyrsta skref í átt að sterku, var­an­legu og eilífu friði,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum, Truth Social.

Hér er yfir­lit yfir það sem er vitað um sam­komu­lagið, sem á að verða und­ir­ritað í Egypta­landi á fimmtu­dag:

Hvað felur það í sér?

Hamas mun sleppa 20 lif­andi gíslum í einu sem hluta af fyrsta áfanga sam­komu­lags­ins, að sögn palest­ínsks heim­ild­ar­manns sem stendur nærri við­ræð­unum.

Yfir­maður innan Hamas sagði við AFP að Ísrael myndi sleppa nær 2.000 palest­ínskum föngum, þar af 250 sem afplána ævi­langa fang­els­is­dóma og 1.700 öðrum sem hafa verið hand­teknir frá því stríðið hófst.

Skiptin eiga að fara fram innan 72 klukku­stunda frá því að sam­komu­lagið tekur gildi og hafi einnig verið „sam­þykkt með öðrum palest­ínskum fylk­ingum“, að sögn ann­ars heim­ild­ar­manns innan Hamas.

Samkvæmt sömu heim­ild mun lág­mark 400 flutn­inga­bílar með aðstoð fara inn á Gazaströndina dag hvern fyrstu fimm daga vopna­hlés­ins, en sú tala verði aukin næstu daga á eftir.

Einnig er gert ráð fyrir „heim­komu flótta­fólks frá suð­ur­hluta Gazastrandar til Gazaborgar og norð­ur­hlut­ans strax“, sagði heim­ild­ar­mað­ur­inn.

Sam­komu­lagið kveður á um „áætl­aða brott­flutn­inga“ ísra­elska hers­ins, sam­kvæmt hátt­settum full­trúa Hamas, og felur jafn­framt í sér „trygg­ingar frá for­seta Trump og milli­göngu­að­il­unum“.

Í opin­berri yfir­lýs­ingu hvatti Hamas Trump til að tryggja að Ísrael fram­fylgi sam­komu­lag­inu að fullu og „leyfi því ekki að svíkja sig undan eða tefja fram­kvæmd þess sem hefur verið sam­þykkt“.

Hvað gerist næst?

Tals­maður utan­rík­is­ráðu­neytis Katar, Majed al-Ansari, sagði að báðar hliðar hefðu þegar náð „sam­komu­lagi um öll ákvæði og fram­kvæmd fyrstu lotu vopna­hléssamn­ings­ins fyrir Gaza“.

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, sagði að hann myndi kalla saman rík­is­stjórn sína á fimmtu­dag til að sam­þykkja sam­komu­lagið.

Að sögn heim­ild­ar­manns sem þekkir til samn­ings­ins verður hann form­lega und­ir­rit­aður í Egypta­landi um hádeg­is­bil á fimmtu­dag.

Fulltrúi Hamas sagði að við­ræður um annan áfanga vopna­hlés­ins myndu hefj­ast „strax“.

Trump sagði á mið­viku­dag að hann teldi að allir gísl­arnir, þar á meðal þeir látnu, yrðu „komnir heim“ á mánu­dag.

Tuttugu liða áætlun Trump fyrir Gaza kvað á um vopna­hlé, lausn allra gísla sem eru í haldi í Gaza, afvopnun Hamas og stig­vax­andi brott­flutn­ing Ísraels úr land­svæð­inu.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár