Forsætisráðherra Frakklands segir af sér klukkustundum eftir að hafa kynnt nýja ríkisstjórn

Emmanuel Macron for­seti Frakk­lands tók við afsögn for­sæt­is­ráð­herr­ans Sébastien Lecornu aðeins klukku­stundum eftir að ný rík­is­stjórn var kynnt, eftir harða gagn­rýni á óbreytta ráð­herra­lista og vax­andi óánægju með stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

Forsætisráðherra Frakklands segir af sér klukkustundum eftir að hafa kynnt nýja ríkisstjórn

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, hefur sam­þykkt afsögn for­sæt­is­ráð­herr­ans Sébastien Lecornu aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að ný rík­is­stjórn hans var kynnt, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu. Afsögnin dýpkar enn frekar þá póli­tísku stöðnun sem landið hefur glímt við und­an­farið.

Macron skip­aði Lecornu, sem áður gegndi emb­ætti varn­ar­mála­ráð­herra, í for­sæt­is­ráðu­neytið í síð­asta mán­uði. En ný rík­is­stjórn, sem kynnt var seint á sunnu­dags­kvöld, og inni­hélt fáar breyt­ingar, mætti strax harðri gagn­rýni úr öllum áttum stjórn­mál­anna.

Lecornu stóð frammi fyrir erf­iðu verk­efni: að tryggja sam­þykki fyrir ströngu fjár­laga­frum­varpi næsta árs í mjög sund­ur­leitu þingi. Tveir for­verar hans, François Bayrou og Michel Barnier, voru báðir reknir úr emb­ætti eftir árekstra við þingið um fjár­lögin.

Ný gögn sýna að skuldir Frakk­lands hafa aldrei verið hærri. Hlutfall skulda af vergri lands­fram­leiðslu er nú það þriðja hæsta innan Evr­ópu­sam­bands­ins – aðeins Grikk­land og Ítalía skulda meira – og nær tvö­faldar 60 pró­senta mörkin sem leyfð eru sam­kvæmt reglum ESB.

Síðustu þrjú ár hafa rík­is­stjórnir Macron komið fjár­lögum í gegnum þingið án atkvæða, sam­kvæmt ákvæði í stjórn­ar­skránni sem gerir slíkt mögu­legt, en hefur verið harð­lega gagn­rýnt af stjórn­ar­and­stöð­unni. Lecornu hafði þó lofað í síð­ustu viku að þing­menn fengju að greiða atkvæði um frum­varpið.

Frakk­land hefur verið fast í póli­tískum hnút síðan Macron efndi til skyndi­legra þing­kosn­inga um mitt síð­asta ár í þeirri von að styrkja stöðu sína. Sá leikur fór illa – og skilti meiri­hluta hans eftir í minni­hluta á þingi.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár