Sannleikur, fegurð, frelsi, ást og ringulreið

„Á þessum síð­ustu og verstu tímum er kvöld­stund aftengd raun­veru­leik­anum kær­komin,“ skrifar leik­hús­rýn­ir­inn Sigríður Jóns­dóttir um Moulin Rouge! Borg­ar­leik­húss­ins.

Sannleikur, fegurð, frelsi, ást og ringulreið
Leikhús

Moulin Rouge!

Höfundur John Logan
Leikstjórn Brynhildur Guðjónsdóttir
Leikarar Hildur Vala Baldursdóttir, Mikael Kaaber, Halldór Gylfason, Valur Freyr Einarsson, Björn Stefánsson, Haraldur Ari Stefánsson, Íris Tanja Flygenring, Margrét Eir Hönnudóttir, Esther Talía Casey, Pétur Ernir Svarsson. o.fl.

Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson Danshöfundur: Kirsty McDonald Ljósahönnun: Pálmi Jónsson Hljóðhönnun: Jón Örn Eiríksson og Þorbjörn Steingrímsson Hljóðblöndun: Þórhallur Arnar Vilbergsson Leikgervi: Astrid Lynge Ottosen og Andrea Ruth Andrésdóttir Sviðsetning: Anders Albien Leikmynd: takis Búningar: Astrid Lynge Ottosen Umsjón með tónlistarútsetningum: Joakim Pedersen Myndbandsgerð: Formförbundet

Borgarleikhúsið
Niðurstaða:

Svakalegt sjónarspil sem nær stundum að fanga hjartað en ekki halda því.

Gefðu umsögn

Fyrir ákveðna kyn­slóð af söng­leikja­að­dá­endum mark­aði Moulin Rouge! þátt­ar­skil. Kvikmynd Baz Luhrmann breytti regl­unum, hækk­aði allt í botn og skap­aði einn eft­ir­minni­leg­asta kvik­mynda­söng­leik seinni tíma. Til að gæta gagn­sæis þá er höf­undur af fyrr­nefndri kyn­slóð. Nú má upp­lifa töfra Rauðu myll­unnar á leik­sviði í Borg­ar­leik­hús­inu undir leik­stjórn Bryn­hildar Guð­jóns­dóttur. En listin, eins og lífið, er stundum þyrnum stráð. 

Söngvaskáldið Christian er ungur maður í leit að sjálfum sér og hvert er betra að fara um alda­mótin 1900 en til Parísar, á bólakaf í und­ir­heima borg­ar­innar með bóhemum sem lifa fyrir frelsið, list­ina og ást­ina. Christian er á auga­bragði orðin lyk­il­maður í áformum tveggja lista­manna til að svið­setja leik­rit í Rauðu myll­unni þar sem þau jað­ar­settu skemmta yfir­stétt­inni gegn greiðslu, og fellur sam­stundis fyrir stjörnu stað­ar­ins, Satine. 

Moulin Rouge! er helj­ar­innar söng­leikur og vitn­is­burður um hæfi­leika­fólkið sem starfar í sviðs­listum á land­inu. Leik­hóp­ur­inn og tón­list­ar­fólkið gefur mik­inn kraft í sýn­ing­una en …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár