Árbæingar öskuillir út af vanstilltum snjallljósum

Snjall­stýrð ljós virka ekki sem skyldi við gatna­mót Höfða­bakka og Bæj­ar­háls. Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir árbæ­inga öskuilla á meðan for­maður skipu­lags­ráðs segir fram­kvæmdir í raun enn þá í gangi.

Árbæingar öskuillir út af vanstilltum snjallljósum
Enn er verið að stilla snjall­ljós og hefur það tekið lengri tíma en von­ast var til. Umferð hefur því verið með þyngsta móti í hverf­inu und­an­farið. Mynd: Golli

Mikil reiði er á meðal íbúa í Árbæj­ar­hverf­inu í Reykja­vík eftir breyt­ingar á ljósum við gatna­mót Bæj­ar­háls og Höfða­bakka. Formaður skipu­lags- og umhverf­is­ráðs Reykja­vík­ur­borgar segir fram­kvæmdir í raun ekki yfir­staðnar. Enn sé verið að stilla ný snjall­ljós sem sett voru upp og gerir það að verkum að íbúar og þeir sem starfa í hverf­inu eru nú fastir í umferð­ar­teppu á álags­tímum, nokkuð sem var ekki vandi fyrir.   

Læsast inni í hverfinu

„Íbúar eru bara ösku­reiðir, það er bara þannig,“ segir Björn Gíslason, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sjálfur býr í Árbæj­ar­hverf­inu. Athuga­semdir íbúa í hverf­is­hóp Árbæjar á Facebook end­ur­speglar mik­inn pirr­ing íbúa sem segja nýtt fyr­ir­komu­lag að auki stór­hættu­legt. Mikið umferð­ar­öng­þveiti hefur mynd­ast við gatna­mótin á háanna­tíma, en íbúar segja á sam­fé­lags­miðl­inum að það hafi aldrei verið áður, gatna­mótin hafi í raun gengið vel fyrir sig hingað til, en nú kom­ist þeir varla út úr hverf­inu á háanna­tíma. Fyr­ir­komu­lagið sé að auki …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár