Áfram stelpa!

Lína Langsokkur brúar kyn­slóð­ar­bil, ekki bara á leik­svið­inu og bak­við tjöldin heldur líka út í sal. Sigríður Jóns­dóttir rýnir í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins á þess­ari klass­ísku barna­sýn­ingu.

Áfram stelpa!
Leikhús

Lína Langsokkur

Höfundur Astrid Lindgren
Leikstjórn Agnes Wild
Leikarar Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Jakob van Oosterhout, Selma Rán Lima, Ebba Katrín Finnsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Kristinn Óli S. Haraldsson, Almar Blær Sigurjónsson, Eygló Hilmarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Nick Candy o.fl.

Leikgerð: Staffan Götestam Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: Eva Björg Harðardóttir Dans – og sviðshreyfingar: Elma Rún Kristinsdóttir Brúðumeistari: Bernd Ogrodnik Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir Hljóðhönnun: Brett Smith og Þóroddur Ingvarsson Tónlist: George Riedel, Jan Johansson og Anders Berglund Tónlistarstjórn: Karl Olgeir Olgeirsson Þýðandi: Kristján Eldjárn

Þjóðleikhúsið
Niðurstaða:

Lína Langsokkur er tímalaus brú á milli kynslóða, áminning um mikilvægi þess að læra af reynslunni og verða betri manneskja.

Gefðu umsögn

Hver kyn­slóð á skilið að upp­lifa Línu Langsokk upp á nýtt, sjálf­stæðu og öðru­vísi stelpuna sem lætur ekki full­orðna fólkið skipa sér fyrir en vill samt læra af reynsl­unni og verða betri mann­eskja. Laug­ar­dag­inn 13. sept­em­ber spratt hún aftur fram á leik­sviðið í Þjóð­leik­hús­inu undir leik­stjórn Agnesar Wild, átta­tíu árum eftir að Astrid Lindgren skap­aði þessa ákveðnu og sterku stelpu til að gleðja dóttur sína. 

Birta Sólveig Söring Þór­is­dóttir leikur Línu að þessu sinni og geislar af gef­andi orku. Þessi nýút­skrif­aða leik­kona setur leik­sýn­ing­una á herðar sér og skoppar með hana til leiksloka. Hún syngur, skott­ast, skutl­ast og skemmtir af miklum móð áhorf­endum til mik­illar kæti. Nágranna­börnin, Önnu og Tomma, eru líka leikin af nýliðum. Jakob van Oosterhout og Selma Rán Lima tóku bæði þátt í leik­sýn­ingum Þjóð­leik­húss­ins á síð­asta leik­ári, líkt og Birta Sólveig. Fátt er ánægju­legra en að sjá ungt lista­fólk taka fyrstu skrefin í atvinnu­leik­húsi og …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár