Jimmy Kimmel tekinn af dagskrá eftir þrýsting stjórnvalda

Spjall­þáttur Jimmys Kimmel var tek­inn af dag­skrá um óákveð­inn tíma eftir hót­anir stjórn­valda vegna ummæla hans um morðið á Charlie Kirk. Gagn­rýnendur tala um rit­skoðun en Donald Trump fagn­aði ákvörð­un­inni opin­ber­lega.

Jimmy Kimmel tekinn af dagskrá eftir þrýsting stjórnvalda
„Cancelled“ Spjall­þáttur Jimmy Kimmel – Jimmy Kimmel Live! – hefur verið tek­inn af dag­skrá minnst tíma­bundið. Mynd: Patrick T. Fallon / AFP

Spjall­þáttur banda­ríska sjón­varps­manns­ins Jimmys Kimmel var tek­inn af dag­skrá á mið­viku­dag, aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hót­aði að aft­ur­kalla útsend­ing­ar­leyfi ABC sjón­varps­stöðv­ar­innar vegna ummæla Kimmel um morðið á Charlie Kirk.

Þessa óvænta ákvörðun stjórn­enda ABC um að taka einn vin­sælasta spjall­þátt Banda­ríkj­anna af dag­skrá hefur sætt gagn­rýni og sögð vera til marks um rit­skoðun stjórn­valda. Ákvörð­un­inni hefur aftur á móti verið fagnað ákaft af Donald Trump, sem lengi hefur verið ósáttur við þá sem gera grín að honum – líkt og Kimmel.

„Frábærar fréttir fyrir Ameríku,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðil sinn Truth Social. „Til ham­ingju ABC að hafa loks­ins haft hug­rekkið til að gera það sem þurfti að gera.“

Trump, sem gladd­ist líka yfir því þegar til­kynnt var um að fram­leiðslu á spjall­þætti Stephens Colbert yrði hætt, kall­aði svo eftir því að tveir aðrir spjall­þættir yrðu líka teknir af dag­skrá sjón­varps­stöðva.

„Þá eru það bara Jimmy (Fallon) og Seth (Meyers), tveir lúðar, á fals­frétta NBC. Áhorfið á þá er hræði­legt. Gerið það NBC!!!“

Í Hollywood, þar sem þáttur Kimmel er tek­inn upp, var áhorf­endum sem ætl­uðu að vera í sal við upp­tök­una vísað frá mynd­ver­inu á mið­viku­dag. 

Tommy Williams, hafn­ar­verka­maður frá Flórída, sagði við AFP að sér fynd­ist ákvörð­unin ó-banda­rísk. „Öllum þáttum í sjón­varpi þar sem talað er gegn Donald Trump, reynir hann að fá aflýst,“ sagði hann. „Við erum að tapa mál­frels­inu. Þetta er eitt­hvað sem ger­ist í Rúss­landi og Norður-Kóreu og Kína, rík­is­sjón­varps­dæmi.“

Hótanir stjórnvalda

Átökin eiga sér stað viku eftir að Kirk, náinn banda­maður Trump, var skot­inn til bana á háskóla­svæði í Utah. Morðið hratt af stað átökum um hver bæri ábyrgð­ina, sem hefur skapað mikla spennu milli and­stæðra póla í hinu skaut­aða sam­fé­lagi Banda­ríkj­anna. Íhalds­menn – þar á meðal Trump – kenna „rót­tæka vinstr­inu“ um.

Yfirvöld hafa ákært hinn 22 ára gamla Tyler Robinson og segja hann hafa verið einan að verki. Á mánu­dag fjall­aði Kimmel um málið í upp­hafi þáttar síns. 

„MAGA-gengið reynir af örvænt­ingu að lýsa þessum unga manni, sem myrti Charlie Kirk, sem ein­hverjum öðrum en einum úr þeirra eigin röðum og gera allt til að græða póli­tískt á þessu,“ sagði Kimmel og vís­aði til stuðn­ings­manna Trump sem eru kenndir við slag­orð hans Make America Great Again.

Hann sýndi síðan upp­töku þar sem Trump sneri spurn­ingu um hvernig dauði Kirk hefði haft áhrif á hann yfir í að hrósa nýjum veislu­sal sem hann er að láta reisa í Hvíta hús­inu, sem vakti hlátur í salnum. „Svona syrgir full­orð­inn maður ekki morð á ein­hverjum sem hann kallar vin. Þetta er eins og fjög­urra ára barn að syrgja gull­fisk,“ sagði Kimmel. 

Á mið­viku­dag hót­aði Brendan Carr, for­maður Federal Communications Commission, FCC, opin­ber­lega að hefta útsend­inga­leyfi ABC-stöðva sem sýna þátt Kimmel. 

„Ég held að það sé löngu tíma­bært að þessar (stöðvar) standi sjálfar upp og segi: „Heyrðu, við ætlum ekki lengur að sýna Kimmel fyrr en þú lagar þetta, því ann­ars stöndum við frammi fyrir því að missa útsend­ing­ar­leyfi frá FCC“,“ sagði hann við hægri­s­inn­aða hlað­varps­stjórn­and­ann Benny Johnson. 

„Við getum gert þetta á auð­veldan hátt eða erf­iðan. Þessi fyr­ir­tæki geta breytt hegðun sinni og gripið til aðgerða, hreint út sagt gegn Kimmel, eða þá að það verður aukið starf fram undan hjá FCC.“ 

Nokkrum klukku­stundum síðar til­kynnti Nexstar, einn stærsti eig­andi ABC-stöðva í land­inu, að þátt­ur­inn yrði tek­inn út af þeirra stöðvum.

Nexstar sendur um þessar mundir í marg­millj­arða doll­ara sam­runa­ferli við keppi­naut sem krefst sam­þykkis FCC. ABC – sem er í eigu Disney – fylgdi í kjöl­farið og tók þátt­inn af dag­skrá á lands­vísu. 

Kimmel tjáði sig ekki strax og full­trúar grínist­ans svör­uðu ekki fyr­ir­spurnum AFP.

„Þau eru að þagga niður í ykkur“

Stjórn­völd í Hvíta hús­inu hafa oft­sinnis beint gagn­rýni sinni að menn­ing­ar­stofn­unum sem þau telja óvin­veittar stefnu Trumps um hægri­s­inn­aða þjóð­ern­is­hyggju. 

Lög­manns­stofur, háskólar og fjöl­miðlar hafa allir verið skot­mörk, meðal ann­ars með mál­sóknum sem lög­fræð­ingar telja efn­is­lega veikar en hafa engu að síður leitt til veru­legra greiðslna. 

Bæði ABC og CBS, sem er í eigu Paramount, hafa greitt slíkar upp­hæðir.

Samn­ing­arnir – sem eiga að renna til bóka­safns í nafni Trump – voru sagðir bein­línis knúnir áfram af vilja eig­enda fjöl­miðl­anna til að við­halda vin­sam­bandi við Trump.

Demókratar tengdu punkt­ana fljót­lega saman á mið­viku­dag.

„Trump for­seti og Charr, stjórn­ar­for­maður FCC, gerðu þetta alveg skýrt: hagið ykkur eða við þöggum niður í ykkur,“ skrif­aði Ben Ray Lujan, öld­unga­deild­ar­þing­maður, á X.

„Að kaupa og hafa stjórn á fjöl­miðlum. Að reka álits­gjafa. Að aflýsa þáttum. Þetta eru ekki til­vilj­anir. Þetta er skipu­lagt. Og þetta er hættu­legt,“ skrif­aði Gavin Newsom, rík­is­stjóri Kali­forníu.

„Þau eru að þagga niður í ykkur í raun­tíma.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár