Ofbeldi á meðal barna eykst en fleiri þekkja rétt sinn

Heim­il­is­of­beldi á milli systk­ina og á milli for­eldra og barna hefur auk­ist um 29 pró­sent síðan í fyrra. „Börn eru farin að átta sig sterkt á rétt­indum sínum,“ segir Ólöf Ásta Farest­veit for­stjóri Barna- og fjöl­skyldu­stofu. Hún telur vit­unda­vakn­ingu hafa orðið í sam­fé­lag­inu en segir áhættu­hegðun barna hafa auk­ist.

Ofbeldi á meðal barna eykst en fleiri þekkja rétt sinn
Heim­il­is­of­beldi auk­ist Heim­il­is­of­beldi á milli systk­ina og á milli for­eldra og barna jókst um 29 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sam­an­borið við í fyrra. Mynd: Shutterstock

Ólöf Ásta Farest­veit for­stjóri Barna- og fjöl­skyldu­stofu segir aukn­ingu í heim­il­is­of­beld­is­málum sem snúa að börnum ekki koma á óvart. Í nýrri skýrslu lög­reglu­stjóra um heim­il­is­of­beldi fyrstu sex mán­uði árs­ins segir: „Ofbeldi af hendi fjöl­skyldu­með­lims gegn systk­ini, for­eldri gegn barni og barn gegn for­eldri fjölgar um 29 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil og í fyrra.“

Ólöf telur að margar ólíkar breytur liggi á bak­við töl­urnar. Bæði hafi vit­unda­vakn­ing orðið í mála­flokknum en stofn­unin sjái þó einnig aukna áhættu­hegðun meðal barna. 

Börn þekkja rétt sinn

„Ég held að aðgerðir sam­fé­lags­ins séu að ýta þessum málum upp á yfir­borðið,“ segir Ólöf. Hún telur það að vissu leyti jákvætt því þá sé hægt að grípa til aðgerða til að draga úr ofbeldi. Þá segir hún að aðgerðir lög­reglu skipti líka gríð­ar­legu máli. Lög­reglan hafi verið að „taka þessi mál og sýna þeim athygli.“ 

„Sam­fé­lagið allt er mjög með­vitað um þennan …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár