Hong Kong hafna frumvarpi um samkynja sambúð

Þingmenn í Hong Kong felldu í dag frum­varp sem veitir sam­kyn­hneigðum pörum frek­ari rétt­indi. Nið­ur­staðan er mikið áfall fyrir hinsegin sam­fé­lagið í Hong Kong.

Hong Kong hafna frumvarpi um samkynja sambúð

Þingmenn í Hong Kong höfn­uðu í dag frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem hefði veitt sam­kyn­hneigðum pörum – sem eru með skráða sam­búð erlendis – tak­mörkuð rétt­indi í Hong Kong er varða lækn­is­þjón­ustu og erfða­mál. Nið­ur­staðan er mikið áfall fyrir hinsegin sam­fé­lagið í Hong Kong.

Hong Kong bannar sem stendur hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. En aðgerða­sinnar hafa samt sem áður unnið mál fyrir dóm­stólum sem hafa fellt úr gildi ýmsa mis­munun. Til dæmis er varða vega­bréfs­á­rit­anir, skatta­mál, erfðir og hús­næð­is­mál.

89 þing­menn kusu gegn frum­varp­inu sem rík­is­stjórnin lagði fram í kjöl­far úrskurðar Hæsta­réttar frá árinu 2023. Þar var fyr­ir­skipað að laga­legan ramma þyrfti að setja um mál­efni hinsegin para. 

Saga hinsegin baráttu í Hong Kong

Árið 1991 sam­þykkti lög­gjaf­inn í Hong Kong að ​​afglæpa­væða kyn­ferð­is­legar athafnir milli karla 21 árs og eldri. Þannig fylgdi Hong Kong for­dæmi Bret­lands.

Eftir að borgin var afhent Kína árið 1997, náðu hinsegin …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár