Safnar fyrir útborgun í bílskúr foreldra sinna

Hjálmar Snorri Jónsson inn­rétt­aði í sumar bíl­skúr for­eldra sinna en hann býr í honum ásamt kær­ustu sinni. Hann segir auð­veld­ara að geta safnað fyrir íbúð þannig heldur en að fara fyrst inn á leigu­mark­að­inn. „Það er svo­lítið hugs­unin að í stað þess að vera á leigu­mark­aði get ég bara verið hér og safnað pen­ingum,“ segir Hjálmar.

Safnar fyrir útborgun í bílskúr foreldra sinna
Innrétti bíl­skúr for­eldra sinna Hjálmar Snorri segir auð­veld­ara að safna fyrir íbúð úr bíl­skúr for­eldra sinna en í leigu­í­búð. Mynd: Víkingur

Hjálmar Snorri er 24 ára og var að hefja meist­ara­nám í klínískri sál­fræði. Hann hefur búið í bíl­skúr for­eldra sinna síð­ast­liðin fimm ár en inn­rétt­aði og stækk­aði íbúð­ina þar nú í sumar. „Þetta er svo­lítið til að geta fengið sitt eigið pláss svona eins og maður væri að kaupa sér íbúð,“ segir hann og bætir við að ný inn­rétt­ing geti nýst for­eldrum hans síðar meir: „Ég hugs­aði að þegar ég loks­ins fer að heiman þá geti mamma og pabbi leigt þetta út þegar þau fara á eft­ir­laun.“

Blaða­maður spyr hvort Hjálmar sé mikið að skoða hús­næð­is­mark­að­inn eða að reyna að koma sér inn á hann. Hann svarar: „Ég veit að ég hef ekki efni á íbúð eða fyrstu útborgun eða svo­leiðis þannig ég pæli ekki mikið í hús­næð­is­mark­aðnum á meðan ég er í námi.“ 

Ódýrara en leigumarkaðurinn

Hjálmar segir það hafa verið mun ódýr­ara að inn­rétta skúr­inn …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár