Fjórtán með fölsuð skilríki – Óvenjulegt mál og mansal til skoðunar

Fjór­tán manns frá As­íu voru stöðv­uð á Kefla­vík­ur­flug­velli með föls­uð skil­ríki í lok ág­úst. Tvö lög­reglu­um­dæmi, rík­is­lög­reglu­stjóri og dóms­mála­ráðu­neyti koma að mál­inu, auk þess sem haft hef­ur ver­ið sam­band við Europol.

Fjórtán með fölsuð skilríki – Óvenjulegt mál og mansal til skoðunar
Tengivöllur „Við erum kannski fyrst að sjá núna að það sé verið að herja svona grimmt á Ísland,“ segir aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Mynd: Golli

Fjórtán manns frá Asíu hafa frá því í lok ágústmánaðar verið stöðvuð á Keflavíkurflugvelli með fölsuð skilríki. Fólkið er ekki í gæsluvarðhaldi en má hvorki koma inn í landið né halda ferð sinni áfram. Þau eru því í úrræði á afmörkuðu svæði sem lögreglan getur fylgst með á grundvelli laga um útlendinga og laga um landamæri.

Þetta staðfestir Ómar Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Heimildina. „Við erum enn að vinna í því að staðfesta auðkenni þessara aðila. Það er verk í vinnslu. Við erum að vonast eftir því að fá einhverja samvinnu frá þessum einstaklingum til þess að aðstoða okkur við að bera kennsl.“

Blm: Er grunur um að þetta gæti verið mansal?

„Við útilokum það alls ekki,“ segir Ómar.

Gefa upp rangt þjóðerni

Allir einstaklingarnir höfðu komið frá Asíu til Evrópu, inn á Schengen-svæðið þaðan sem þau ferðuðust til Íslands og ætluðu sér að halda áfram til Kanada. „Þetta eru allt mismunandi staðir innan Evrópu sem þetta fólk er að ferðast frá.“ 

Spurður nánar út í eðli skilríkjanna segir Ómar þau vera frá ýmsum löndum – Suður-Kóreu, Japan og Taívan, til dæmis. 

Blm: Haldið þið að þau séu að villa á sér heimildir með tilliti til þjóðernis?

„Já,“ segir Ómar, sem vill ekki tjá sig um það hvort fólkið hafi verið í samfloti. Þá segir hann enn ótímabært að segja í hvaða erindagjörðum einstaklingarnir voru.

Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar er um Kínverja að ræða. 

Gríðarlegt álag á lögregluna

Blm: Er einhver grunur um að það hafi verið stærri hópur – komust einhverjir í gegn?

„Ég get ekki staðfest að svo stöddu að einhver hafi komist í gegn. En við erum í samskiptum við Evrópulögregluna og önnur ríki til að reyna að ná betur utan um ástandið og sjá hvort þetta sé mögulega hluti af einhverju stærra verkefni, ef svo má segja.“ 

Ómar segir aðspurður að málið sé óvenjulegt, málið eigi sér ekki fordæmi. „Það er óvenjulegt að sjá svona marga koma á svona stuttum tíma, svo sannarlega. Það sem er í raun sami áfangastaðurinn – Kanada í þessu tilfelli. Þetta setur gríðarlegt álag á ákveðna innviði og á lögregluna. Þarna mæðir rosa mikið á að við þurfum að hafa úrræði til þess að geta tekist á við verkefni af þessari stærðargráðu.“

„Við erum í samskiptum við Evrópulögregluna og önnur ríki til að reyna að ná betur utan um ástandið og sjá hvort þetta sé mögulega hluti af einhverju stærra verkefni, ef svo má segja“

Hann bætir við að málið kristalli mikilvægi þess að koma á einhvers konar úrræðum við landamærin þegar svona mál komi upp – en Ómar segist sannfærður um að fleiri slík mál lendi á borði lögreglu í framtíðinni. „Það sem ég myndi mest vilja sjá – og lögreglan – er að það væri einhvers konar vistunarúrræði á landamærunum þar sem við gætum verið að hýsa einstaklinga sem fá ekki landgöngu og eru til skoðunar.“

Fyrst að sjá núna að herjað sé á Ísland

Ómar bætir því við að lögreglan á Suðurnesjum, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri séu að vinna náið saman við úrlausn þessa máls. „Við erum líka í mjög góðum samskiptum við dómsmálaráðuneytið.“ 

Spurður hvort hægt sé að setja málið í samhengi við alþjóðlega þróun segist Ómar telja að svona mál hafi verið viðvarandi í töluverðan tíma.

„Við erum kannski fyrst að sjá núna að það sé verið að herja svona grimmt á Ísland. Ísland er náttúrulega þessi tengivöllur við bæði Evrópu og Bandaríkin. Þannig að þarna eru menn að reyna að koma sér í gegn og nýta sér flugstöðina til að reyna að komast á áfangastað. En við erum staðráðin í því að standa vaktina og erum að beita þeim mótvægisaðgerðum sem við getum – við höldum bara áfram með okkar baráttu.“ 

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Allir reyna einhvernvegin að ná sér í penínga alveg sama hvað það kostar!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Starfsmenn Bifrastar ósammála um tilurð og tilgang FAB
6
Skýring

Starfs­menn Bifrast­ar ósam­mála um til­urð og til­gang FAB

Starfs­menn stjórn­sýslu og Fé­lags aka­demískra starfs­manna á Bif­röst eru ósam­mála um upp­runa deiln­anna sem stað­ið hafa yf­ir síð­ustu mán­uði. Starfs­menn stjórn­sýslu skól­ans telja fé­lag­ið hafa sprott­ið upp úr reiði vegna auk­inna gæðastaðla en með­lim­ir fé­lags­ins segja það af og frá. Enn er gild van­traust­stil­laga á hend­ur tveim­ur stjórn­end­um skól­ans.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
1
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
6
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Huldu­fé bak við fund Sig­mund­ar Dav­íðs og Re­públi­kana

Jane Mayer, blaða­mað­ur hjá The New Yor­ker, seg­ir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tök­in Turn­ing Po­int sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Re­públi­kana að hitta formann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængn­um. Hún hef­ur rann­sak­að net Char­les Koch sem nær til Ís­lands. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son hef­ur ekki svar­að því hver greiddi ferð hans.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár