Emmy-verðlaunahafi handtekinn vegna hatursorðræðu í garð trans fólks

Handtaka Emmy-verð­launa­hafans Graham Linehan vegna hat­urs­orð­ræðu í garð trans fólks hefur vakið upp deilur í Bret­landi um mörk tján­ing­ar­frels­is­ins. For­sæt­is­ráð­herr­ann Keir Starmer hefur hvatt lög­regl­una til að „ein­beita sér að alvar­leg­ustu mál­unum“.

Emmy-verðlaunahafi handtekinn vegna hatursorðræðu í garð trans fólks
Graham Linehan með Emmy-verð­laun fyrir The IT Crowd. Mynd: AFP

Írski hand­rits­höf­und­ur­inn Graham Linehan seg­ist hafa verið hand­tek­inn af fimm vopn­uðum lög­reglu­mönnum á Heathrow-flug­velli í Lundúnum á mánu­dag vegna færslna hans á sam­fé­lags­miðl­inum X.

Linehan er höf­undur bresku gam­an­þáttar­að­ar­innar Father Ted sem naut mik­illa vin­sælda á tíunda ára­tugnum en hann er einnig með­höf­undur gam­an­þátt­anna The IT Crowd og  Black Books og  sem hlutu bæði Emmy-verð­laun og BAFTA-við­ur­kenn­ingar.

Á síð­ari árum hefur hann orðið þekktur fyrir andúð sína á mál­efnum trans fólks og hefur líkt notkun lyfja sem fresta kyn­þroska við kyn­bóta­stefnu nas­ista. 

Channel 4 fjar­lægði umdeildan þátt af The IT Crownd af streym­isveitu sinni árið 2020 eftir kvart­anir um trans­fó­bíu vegna við­bragða per­són­unnar Douglas við trans mann­eskju og hat­urs­fullra skoð­ana  Linehan á trans sam­fé­lag­inu.

Lög­reglan í London stað­festi við breska fjöl­miðla að karl­maður hefði verið hand­tek­inn við komu frá Banda­ríkj­unum, grun­aður um að hafa hvatt til ofbeldis í færslum á X.

 Linehan á að mæta fyrir dóm á fimmtu­dag í öðru máli þar sem hann er ákærður fyrir áreitni og eigna­spjöll gegn trans ein­stak­lingi.

Segir þetta stríð gegn frelsi

„Það er venjan að lög­reglu­menn á flug­völlum beri skot­vopn. Þau voru hvorki tekin upp né notuð við hand­tök­una,“ sagði í yfir­lýs­ingu lög­regl­unni í London vegna máls­ins.

Nigel Farage, banda­maður Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta og leið­togi Umbóta­flokks Bret­lands, sem mælist nú með for­ystu í breskum skoð­ana­könn­unum, sagð­ist ætla að vekja athygli á mál­inu og sam­bæri­legum til­vikum þegar hann kæmi fyrir banda­ríska þingið í dag, mið­viku­dag.

„Mál Graham Linehan er enn eitt dæmið um stríðið gegn frelsi í Bret­landi,“ sagði hann áður en hann kom fram fyrir dóms­mála­nefnd full­trúa­deild­ar­innar. „Tján­ing­ar­frelsið verður fyrir árásum og ég hvet Banda­ríkin til að vera á varð­bergi.“

Starmer vísar í tjáningafrelsi

Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði á breska þing­inu á dag: „Það er rík hefð fyrir tján­ing­ar­frelsi í þessu landi“ og bætti við að „við verðum að tryggja að lög­reglan ein­beiti sér að alvar­leg­ustu mál­unum“.

Lög­reglu­stjór­inn Mark Rowley tók í sama streng og sagði að nauð­syn­legt væri að breyta lögum. Fram­vegis myndi lög­reglan aðeins rann­saka sam­fé­lags­miðla­færslur „þar sem ljóst er að hætta er á skaða eða óeirðum“.

„Þegar óvissa ríkir bæði um ásetn­ing og mögu­legan skaða hefur lög­reglan setið föst milli steins og sleggju. Rík­is­stjórnir hafa skilið við okkur án ann­ars úrræðis en að skrá slík til­vik sem glæpi þegar þau eru til­kynnt,“ sagði hann og bætti við: „Ég tel ekki að lög­reglan eigi að eyða tíma sínum í að stýra eitr­uðum menn­ing­ar­stríðum.“

Musk sagði Bretland orðið lögregluríki

Linehan sagði að hand­takan tengd­ist þremur færslum sem hann setti inn á X.

Í einni færsl­unni skrif­aði hann: „Ef karl­maður sem skil­greinir sig sem trans fer inn í rými ein­göngu ætlað konum, þá er hann að fremja ofbeld­is­fulla og nið­ur­lægj­andi athöfn.“

„Vekið athygli á þessu, hringið á lög­regl­una og ef allt annað bregst, sparkið í klofið á honum,“ sagði hann.

Hand­takan hefur vakið heitar umræður um tján­ing­ar­frels­is­lög í Bret­landi.

J. K. Rowling, höf­undur Harry Potter og þekkt fyrir andúð sína í garð trans fólks kall­aði hand­tök­una „algjör­lega hneyksl­an­lega“ og að slíkar hand­tökur ættu sér aðeins stað í alræð­is­ríkjum. 

Elon Musk, millj­arða­mær­ingur og eig­andi X, sagði Bretland vera orðið að „lög­reglu­ríki“.

Zack Polanski, nýr leið­togi græn­ingja í Bret­landi, studdi hins vegar hand­tök­una og sagði hana við­eig­andi í ljósi efnis færsl­anna, þó hann bætti við að hann skildi ekki hvers vegna lög­reglu­menn hefðu verið vopn­aðir.

Tján­ing­ar­frelsi hefur verið í brennid­epli í Bret­landi að und­an­förnu eftir að hund­ruð ein­stak­linga voru hand­teknir fyrir að lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerða­hóp­inn Palestine Action. Hópurinn var skil­greindur sem hryðju­verka­sam­tök eftir að með­limir hans brut­ust inn á breska flug­her­stöð og köst­uðu máln­ingu á flug­vélar.

Umræður blossuðu einnig upp í kjöl­far þess að kona var dæmd í 31 mán­aða fang­elsi á síð­asta ári fyrir að hvetja fólk til þess á X að kveikja í öllum gisti­stöðum sem hýsa hæl­is­leit­endur.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár