Emmy-verðlaunahafi handtekinn vegna hatursorðræðu í garð trans fólks

Hand­taka Em­my-verð­launa­haf­ans Gra­ham Lineh­an vegna hat­ursorð­ræðu í garð trans fólks hef­ur vak­ið upp deil­ur í Bretlandi um mörk tján­ing­ar­frels­is­ins. For­sæt­is­ráð­herr­ann Keir Star­mer hef­ur hvatt lög­regl­una til að „ein­beita sér að al­var­leg­ustu mál­un­um“.

Emmy-verðlaunahafi handtekinn vegna hatursorðræðu í garð trans fólks
Graham Linehan með Emmy-verðlaun fyrir The IT Crowd. Mynd: AFP

Írski handritshöfundurinn Graham Linehan segist hafa verið handtekinn af fimm vopnuðum lögreglumönnum á Heathrow-flugvelli í Lundúnum á mánudag vegna færslna hans á samfélagsmiðlinum X.

Linehan er höfundur bresku gamanþáttaraðarinnar Father Ted sem naut mikilla vinsælda á tíunda áratugnum en hann er einnig meðhöfundur gamanþáttanna The IT Crowd og  Black Books og  sem hlutu bæði Emmy-verðlaun og BAFTA-viðurkenningar.

Á síðari árum hefur hann orðið þekktur fyrir andúð sína á málefnum trans fólks og hefur líkt notkun lyfja sem fresta kynþroska við kynbótastefnu nasista. 

Channel 4 fjarlægði umdeildan þátt af The IT Crownd af streymisveitu sinni árið 2020 eftir kvartanir um transfóbíu vegna viðbragða persónunnar Douglas við trans manneskju og hatursfullra skoðana  Linehan á trans samfélaginu.

Lögreglan í London staðfesti við breska fjölmiðla að karlmaður hefði verið handtekinn við komu frá Bandaríkjunum, grunaður um að hafa hvatt til ofbeldis í færslum á X.

 Linehan á að mæta fyrir dóm á fimmtudag í öðru máli þar sem hann er ákærður fyrir áreitni og eignaspjöll gegn trans einstaklingi.

Segir þetta stríð gegn frelsi

„Það er venjan að lögreglumenn á flugvöllum beri skotvopn. Þau voru hvorki tekin upp né notuð við handtökuna,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunni í London vegna málsins.

Nigel Farage, bandamaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og leiðtogi Umbótaflokks Bretlands, sem mælist nú með forystu í breskum skoðanakönnunum, sagðist ætla að vekja athygli á málinu og sambærilegum tilvikum þegar hann kæmi fyrir bandaríska þingið í dag, miðvikudag.

„Mál Graham Linehan er enn eitt dæmið um stríðið gegn frelsi í Bretlandi,“ sagði hann áður en hann kom fram fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar. „Tjáningarfrelsið verður fyrir árásum og ég hvet Bandaríkin til að vera á varðbergi.“

Starmer vísar í tjáningafrelsi

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu á dag: „Það er rík hefð fyrir tjáningarfrelsi í þessu landi“ og bætti við að „við verðum að tryggja að lögreglan einbeiti sér að alvarlegustu málunum“.

Lögreglustjórinn Mark Rowley tók í sama streng og sagði að nauðsynlegt væri að breyta lögum. Framvegis myndi lögreglan aðeins rannsaka samfélagsmiðlafærslur „þar sem ljóst er að hætta er á skaða eða óeirðum“.

„Þegar óvissa ríkir bæði um ásetning og mögulegan skaða hefur lögreglan setið föst milli steins og sleggju. Ríkisstjórnir hafa skilið við okkur án annars úrræðis en að skrá slík tilvik sem glæpi þegar þau eru tilkynnt,“ sagði hann og bætti við: „Ég tel ekki að lögreglan eigi að eyða tíma sínum í að stýra eitruðum menningarstríðum.“

Musk sagði Bretland orðið lögregluríki

Linehan sagði að handtakan tengdist þremur færslum sem hann setti inn á X.

Í einni færslunni skrifaði hann: „Ef karlmaður sem skilgreinir sig sem trans fer inn í rými eingöngu ætlað konum, þá er hann að fremja ofbeldisfulla og niðurlægjandi athöfn.“

„Vekið athygli á þessu, hringið á lögregluna og ef allt annað bregst, sparkið í klofið á honum,“ sagði hann.

Handtakan hefur vakið heitar umræður um tjáningarfrelsislög í Bretlandi.

J. K. Rowling, höfundur Harry Potter og þekkt fyrir andúð sína í garð trans fólks kallaði handtökuna „algjörlega hneykslanlega“ og að slíkar handtökur ættu sér aðeins stað í alræðisríkjum. 

Elon Musk, milljarðamæringur og eigandi X, sagði Bretland vera orðið að „lögregluríki“.

Zack Polanski, nýr leiðtogi græningja í Bretlandi, studdi hins vegar handtökuna og sagði hana viðeigandi í ljósi efnis færslanna, þó hann bætti við að hann skildi ekki hvers vegna lögreglumenn hefðu verið vopnaðir.

Tjáningarfrelsi hefur verið í brennidepli í Bretlandi að undanförnu eftir að hundruð einstaklinga voru handteknir fyrir að lýsa yfir stuðningi við aðgerðahópinn Palestine Action. Hópurinn var skilgreindur sem hryðjuverkasamtök eftir að meðlimir hans brutust inn á breska flugherstöð og köstuðu málningu á flugvélar.

Umræður blossuðu einnig upp í kjölfar þess að kona var dæmd í 31 mánaða fangelsi á síðasta ári fyrir að hvetja fólk til þess á X að kveikja í öllum gististöðum sem hýsa hælisleitendur.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
1
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörð­un að fækka sjálfs­víg­um

Hvert sjálfs­víg kost­ar sam­fé­lag­ið um 500 millj­ón­ir, en lít­ið hef­ur ver­ið lagt í for­varn­ir. Fyrstu að­gerða­áætl­un gegn sjálfs­víg­um var stung­ið of­an í skúffu. Næstu áætl­un fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unn­ið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­inn­ar. Guð­rún Jóna Guð­laugs­dótt­ir held­ur ut­an um verk­efn­ið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þeg­ar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi vilj­að fara frá mér. En ég get vel skil­ið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
2
Viðtal

Dragdrottn­ing­in sem leit­aði skjóls á Ís­landi: „Ég hélt að þetta væru enda­lok­in“

„Þú læt­ur fólk aldrei sjá þig í dragi fyr­ir ut­an klúbb­ana,“ seg­ir Ray Milano, flótta­mað­ur frá Venesúela. Hann varð fyr­ir árás í heimalandi sínu þeg­ar hann skemmti sem dragdrottn­ing­in Cris­art­i­sta. Ray hafði lagt drag-hæl­ana á hill­una þeg­ar hon­um bauðst að koma fram með nýj­um ís­lensk­um vini sín­um, stór­stjörn­unni Páli Ósk­ari Hjálm­týs­syni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
5
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár