Dætur teknar af þolanda heimilisofbeldis

Tvær ungar stúlkur verða vistaðar utan heim­ilis í allt að tólf mán­uði, sam­kvæmt dóms­úr­skurði. Móðir þeirra, flótta­kona og þol­andi heim­il­is­of­beldis, mót­mælti ákvörð­un­inni og hélt því fram að væg­ari úrræði hefðu ekki verið reynd.

Dætur teknar af þolanda heimilisofbeldis

Lands­réttur hefur stað­fest úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness frá 18. júlí um að tvær systur skyldu dvelja utan heim­ilis í allt að tólf mán­uði frá júní 2025. Málið snýst um fjöl­skyldu sem flúði til Íslands árið 2019 og hefur verið undir eft­ir­liti barna­verndar frá árinu 2022.

Móðirin er ein for­sjárað­ili barna sinna, tveggja drengja og tveggja stúlkna, en for­eldr­arnir skildu árið 2021. Báðir syn­irnir, sem eru eldri en dæt­urnar, hafa glímt við alvar­legan hegð­un­ar­vanda, ofbeldi og neyslu og eru vistaðir utan heim­ilis. Í máli stúlkn­anna hafa borist til­kynn­ingar um lík­am­legt og and­legt ofbeldi, van­rækslu og óvið­un­andi aðbúnað. Þá hefur komið fram grunur um kyn­ferð­is­legt ofbeldi í garð þeirra af hálfu fyrr­ver­andi kærasta móður.

Sveiflaði hnífi sem endaði með inngripi sérsveitar

Að kvöldi 18. maí fund­ust stúlk­urnar einar heima og voru neyð­ar­vi­staðar. Daginn eftir sveifl­aði móð­irin hnífi í átökum við barna­vernd­ar­starfs­mann og lög­reglu, sem end­aði með inn­gripi sér­sveitar og inn­lögn á geð­deild.

Hún kærði ákvörð­un­ina og hélt því fram að skil­yrði barna­vernd­ar­laga væru ekki upp­fyllt þar sem væg­ari úrræði hefðu ekki verið reynd. Hún benti á að hún væri sjálf þol­andi heim­il­is­of­beldis, félags­lega ein­angruð og án kunn­áttu í ensku og íslensku. Hún lýsti sig reiðu­búna að gang­ast undir for­sjár­hæfn­is­mat, sál­fræði­að­stoð og eft­ir­lit á heim­ili. Að hennar mati ætti einnig að vega þungt að dætur hennar hefðu lýst sterkum tengslum við hana og vilja til að snúa aftur heim.

Barna­vernd taldi að aðstæður hefðu lengi verið óvið­un­andi þrátt fyrir umfangs­mik­inn stuðn­ing, til að mynda hús­næði, leik­skóla- og frí­stund­ar­gjöld, tóm­stundir, túlka­þjón­ustu og sál­fræði­að­stoð. Vísað var til nýlegra atvika og þess að stúlk­urnar hefðu fund­ist einar heima. Barna­vernd taldi nauð­syn­legt að grípa inn í áður en þær þró­uðu með sér sam­bæri­legan vanda og bræður þeirra.

Hagsmunir barnanna ættu að vera í fyrirrúmi

Tals­maður og sál­fræð­ingur ræddu við stúlk­urnar. Þær sögð­ust sakna móður sinnar og vilja meiri sam­skipti við hana, en lýstu jafn­framt ánægju með dvöl­ina hjá vist­for­eldrum, sem þær köll­uðu „ömmu og afa“. Samkvæmt mati sál­fræð­ings sýndu þær styrk og aðlög­un­ar­hæfni en héldu að sér höndum um erf­iða reynslu.

Hér­aðs­dómur taldi að aðbún­aður stúlkn­anna hefði lengi verið veru­lega ábóta­vant og að brýn nauð­syn væri til vist­unar utan heim­ilis. Lands­réttur stað­festi nið­ur­stöð­una og hafn­aði kröfum móð­ur­innar. Dómurinn lagði áherslu á að hags­munir barn­anna væru í fyr­ir­rúmi og að tryggja þyrfti þeim öryggi og stöð­ug­leika á meðan unnið væri að for­sjár­hæfni móð­ur­innar.

Barna­vernd­ar­lög gera ráð fyrir að væg­ustu úrræðum sé beitt fyrst og að leit­ast sé við að styrkja fjöl­skyldur í upp­eld­is­hlut­verki sínu. Vistun utan heim­ilis kemur aðeins til greina ef slík úrræði reyn­ast árang­urs­laus eða ófull­nægj­andi. Samkvæmt lögum og barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna skulu hags­munir barna ávallt ganga fyrir og tekið rétt­mætt til­lit til skoð­ana þeirra.

Móðirin segir yfirvöld bregðast

Móðirin taldi að yfir­völd hefðu brugð­ist sér sem þol­anda ofbeldis og ein­stæðri móður og að hún hefði ekki fengið raun­hæft tæki­færi til að sýna for­eldra­hæfni sína. Yfirvöld lögðu hins vegar áherslu á að ástandið hefði verið óvið­un­andi í langan tíma og að grípa yrði til þess­ara úrræða í þágu barn­anna.

Félags­ráð­gjafi sem kom fyrir dóm­inn sagði aðspurð um af hverju hafi ekki verið reynt að fá stuðn­ings­fjöl­skyldu fyrir þau að ekki væri að því hlaupið enda slíkar mjög fáar. Und­ir­bún­ingur að for­sjár­hæfn­is­mati móð­ur­innar er haf­inn.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Enginn skifti sér af því hvernig ég hafði það eða hvernig mer leið þegar ég var og hét! Svona er að vera utan hjóna bands. krakki mörg börn hafa komið þannig undir á islandi og annarsstaðar í heiminum svo ég er ekki sú eina um það
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár