Ein fegursta kirkja Svíþjóðar víkur fyrir námunni

Í Lapp­landi í Svíþjóð er verið að færa sögu­lega kirkju til með mik­illi fyr­ir­höfn til að rýma fyrir stækkun stærstu neð­an­jarð­ar­námu Evrópu. „En það er gríð­ar­lega erfitt að horfa upp á bæinn sinn hverfa,“ segir rit­höf­und­ur­inn Ann-Helen Laesta­dius.

Ein fegursta kirkja Svíþjóðar víkur fyrir námunni

Flutn­ingur sögu­legrar, rauð­mál­aðar timb­ur­kirkju, sem er talin ein fal­leg­asta bygg­ing Sví­þjóðar, hófst í morgun með mik­illi fyr­ir­höfn. Kirkjan verður færð til í bænum Kiruna í Lapp­landi til að rýma fyrir stækkun stærstu neð­an­jarð­ar­námu Evrópu. 

En það er ekki nóg að flytja kirkj­una. Í raun verður allur mið­bær Kiruna fluttur til vegna risa­vax­innar jár­námu LKAB. Sífellt dýpri námu­gröftur hefur veikt jarð­veg­inn og aukið hættu á að hann gefi sig á ákveðnum svæðum. 

Árið 2018 voru 26,9 millj­ónir tonna af járn­grýti sótt í námuna. Námu­vinnslan hófst árið 1898 og alls hafa verið sótt þangað 950 millj­ónir tonna af efni. Það var síðan árið 2004 sem ákveðið var að flytja miðbæ Kiruna austar, vegna hættu á jarð­sigi af völdum námu­vinnslu. Árið 2020 varð jarð­skjálfti af stærð­inni 4,9 á svæð­inu, sem var afleið­ing námu­graftar. Frá árinu 2020 hefur efni aðal­lega verið flutt frá jarð­lögum sem liggja 1.365 metra undir Kiiruna­vaara-fjalli, þar sem …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár