Biðu tímunum saman eftir viðeigandi aðgengi á Vori í Vaglaskógi

Hjördís Heiða Ásmunds­dóttir segir aðgengi hafa verið mjög lélegt á tón­list­ar­há­tíð­inni Vor í Vagla­skógi þrátt fyrir að hún væri aug­lýst aðgengi­leg. Eini kamar­inn fyrir hreyfi­haml­aða fyllt­ist af úrgangi, tjald­svæði var í háu grasi og engir pallar voru svo hægt væri að sjá sviðið. Jakob Frímann Magn­ús­son segir tón­leika­hald­ara hafa brugð­ist við af bestu getu.

Biðu tímunum saman eftir viðeigandi aðgengi á Vori í Vaglaskógi
Hjördís þurfti að tjalda þar sem X er merkt á mynd­ina Það er löng vega­lengd um hátt gras, hæðir og möl að kom­ast frá almenna tjald­svæð­inu að kamr­inum fyrir hreyfi­haml­aða. Ekki var búið að gera ráð­staf­anir svo að hreyfi­haml­aðir gætu tjaldað eða farið um svæðið á aðgengi­legan máta.

„Þetta átti að vera svo æðis­legt en svo auð­vitað skyggði þetta á,“ segir Hjördís Heiða Ásmunds­dóttir. Hún sótti tón­list­ar­há­tíð­ina Vor í Vagla­skógi um Versl­un­ar­manna­helg­ina sem var aug­lýst sem aðgengi­leg fyrir hreyfi­haml­aða en Hjördís notar hjóla­stól. Aðgengi reynd­ist þó mjög ábóta­vant. Hjördís, dóttir hennar og vinir biðu tímunum saman eftir svörum frá Jakobi Frímanni Magn­ús­syni, skipu­leggj­anda hátíð­ar­innar, um við­eig­andi ráð­staf­anir og misstu af kvöld­vöku hátíð­ar­innar í kjöl­farið. 

Máttu sýna þakklæti

Hjördís segir að vin­kona sín hafi mætt á stað­inn um leið og opn­aði og hafi þá spurt hvernig aðgengi fyrir hreyfi­haml­aða hefði verið hugsað. Starfs­fólk hafi ekki verið upp­lýst um hvernig því yrði háttað. Hún hafi sagt skipu­leggj­enda hátíð­ar­innar, Jakobi Frímanni, að ekki væri raun­hæft fyrir hreyfi­haml­aða að vera á tjald­svæð­inu en þar var stórt engi og grasið hátt. Þess utan var þaðan löng vega­lengd að kamri fyrir hreyfi­haml­aða. Jakob Frímann hafi sagt að Hjördís gæti tjaldað í trjá­jaðri …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár