Finnar bregðast við lægri einkunnum með því að banna farsíma

Til að bregð­ast við lægri ein­kunnum í PISA-könnun OECD, sem metur hæfni 15 ára nem­enda í stærð­fræði, lesskiln­ingi og nátt­úru­vís­indum, gripu Finnar til þess ráðs að banna far­síma­noktun í grunn­skólum.

Finnar bregðast við lægri einkunnum  með því að banna farsíma

Ný lög sem tak­marka notkun far­síma í finnskum skólum tóku gildi á föstu­dag, rétt áður en skól­arnir hefja starf­semi að loknu sum­ar­leyfi.

Laga­setn­ing­una má rekja til þess að Finnland, sem hefur lengi verið þekkt fyrir fram­úr­skar­andi mennta­kerfi, hefur horft upp á ein­kunnir lækka í PISA-könnun OECD, sem metur hæfni 15 ára nem­enda í stærð­fræði, lesskiln­ingi og nátt­úru­vís­indum.

Í nýj­ustu PISA-mæl­ingu OECD frá 2022 kom fram að 41 pró­sent finnskra nem­enda töldu að notkun staf­rænna tækja trufl­aði þá í flestum eða öllum stærð­fræði­tímum – sem er mun meira en með­al­tal OECD ríkja, sem var 31 pró­sent.

Til að bregð­ast við því var í apríl sam­þykkt breyt­ing á grunn­skóla­lögum, sem bannar notkun far­síma hjá nem­endum á aldr­inum 7 til 16 ára meðan á kennslu stendur. Nú er aðeins heim­ilt að nota síma eða önnur snjall­tæki í kennslu­stundum með leyfi kenn­ara – ann­að­hvort sem hjálp­ar­tæki við nám eða vegna heil­brigð­is­á­stæðna.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár