Ungir Svíar fengnir til að fremja voðaverk í Danmörku

Tveir menn voru nýlega dæmdir til þungra refs­inga í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar. Dómarnir hafa vakið athygli því þetta var í fyrsta sinn sem dæmt hefur verið, í Danmörku, fyrir að skipu­leggja morð og ráða mann til verks­ins.

7. sept­em­ber  árið 2024 kom 19 ára Svíi til Kaup­manna­hafnar eftir langt ferða­lag frá Svíþjóð. Hann hafði tekið að sér verk, sem tveir menn höfðu skipu­lagt. Hafði reyndar verið á báðum áttum enda var verk­efnið óvenju­legt. En launin freist­uðu og hann sló til.

Þegar Svíinn var kom­inn til Kaup­manna­hafnar hélt hann rak­leiðis heim til ann­ars mann­anna sem hann hafði verið í sam­bandi við og þar gisti hann næstu þrjár nætur. Menn­irnir tveir fóru aftur og aftur með Svíanum yfir verk­efnið, sem var að drepa félaga í glæpa­sam­tök­unum Loyal to Familia (LTF), sem eru reyndar bönnuð í Danmörku. Sá sem ráða átti af dögum var búsettur á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Svíinn hafði komið óvopn­aður með lest­inni yfir sundið en „verk­kaup­end­urnir“ afhentu honum verk­færi; skamm­byssu og raf­magns­reið­hjól.

Eins og áður var nefnt var sá sem ætl­unin var að ráða af dögum félagi í glæpa­sam­tök­unum LTF. Annar þeirra sem fengu Svíann til verks­ins var félagi í Hells Angels glæpa­sam­tök­unum og hinn félagi í AK81, sem er stuðn­ings­hópur Hells Angels.

Rann út í sandinn

Fram undir kvöld 10. sept­em­ber hélt Svíinn kyrru fyrir í íbúð­inni þar sem hann hafði dvalið frá því hann kom til Kaup­manna­hafnar. Hann hafði farið aftur og aftur yfir „áætl­un­ina“. Snemma um kvöldið 10. sept­em­ber fór hann á reið­hjól­inu á Blågårds plads á Norð­ur­brú og kynnti sér aðstæður. Beið svo eftir að stundin þegar hann myndi láta til skarar skríða rynni upp.

Það sem Svíinn vissi ekki var að það voru fleiri að fylgj­ast með á Norð­ur­brú, nefni­lega sér­sveit dönsku lög­regl­unnar. Skemmst er frá því að segja að Svíinn var hand­tek­inn, án átaka, áður en til þess kæmi að hann kæm­ist í færi við þann sem ráða átti af dögum. Hann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald og síðar dæmdur. Rétt­ar­höldin fóru fram fyrir luktum dyrum og lög­reglan hefur mjög lítið látið uppi um málið. Nafn Svíans hefur aldrei verið upp­lýst.

Ekki fyrsta tilvikið

Þetta til­vik sem hér hefur verið rakið, er ekki eins­dæmi. Danski dóms­mála­ráð­herr­ann, Peter Hum­melgaard, greindi frá því í ágúst í fyrra að frá því í apríl það sama ár væri ráðu­neyt­inu kunn­ugt um 25 til­vik þar sem dönsk glæpa­sam­tök, eða ein­stak­lingar, hefðu ráðið sænsk ung­menni til að fremja ýmiss konar ill­virki, oft­ast morð, í Danmörku.

Dönsk glæpa­sam­tök, eða ein­stak­lingar, hefðu ráðið sænsk ung­menni til að fremja ýmiss konar ill­virki, oft­ast morð

Launin fyrir slík verk voru freist­ingin sem erfitt var að stand­ast, iðu­lega 300 þús­und danskar krónur (6 millj­ónir íslenskar) en áhættan líka mikil, margra ára fang­elsi ef upp kæm­ist. Dæmi eru um ein­stak­linga sem hafa hlotið dóm vegna aðstoðar við til­ræð­is­menn, skotið yfir þá skjóls­húsi, aðstoðað við að kom­ast á milli staða og fleira af því tagi. Dómurinn sem nefndur var í upp­hafi þessa pistils sker sig hins vegar úr.

Þungir dómar

Þann 8. júlí 2025 voru kveðnir upp tveir dómar í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar. Þessir tveir dómar marka ákveðin þátta­skil því þetta var í fyrsta sinn sem dæmt hefur verið fyrir skipu­lagn­ingu morðs og að hafa ráðið mann til verks­ins. Þeir dæmdu eru tví­menn­ing­arnir sem réðu Svíann unga til að að fremja morðið á Norð­ur­brú, sem reyndar tókst ekki að fram­kvæma.

Annar hinna dæmdu er Abdullah Cakici, 29 ára félagi í glæpa­sam­tök­unum Hells Angels. Hann fékk 15 ára og 8 mán­aða fang­elsi og að afplánun lok­inni verður honum vísað úr landi og fær aldrei að koma til Dan­merkur aftur. Hann missir danskan rík­is­borg­ara­rétt sinn en hann er jafn­framt tyrk­neskur rík­is­borg­ari.

Hinn sem dæmdur var 8. júlí er Lucas Møller Birch Hansen, danskur rík­is­borg­ari, 26 ára félagi í sam­tök­unum AK81. Hann fékk 16 ára fang­elsi. AK81 sam­tökin voru stofnuð árið 2007 sem eins konar stuðn­ings­hópur Hells Angels.

Bæj­ar­réttur er lægsta dóm­stig af þremur. Menn­irnir tveir sem dæmdir voru í Bæj­ar­rétt­inum 8. júlí áfrýj­uðu báðir til Lands­réttar. Dagur vegna dóms­upp­kvaðn­ingar þar hefur ekki verið til­kynntur.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár