Noregur framselur mann vegna þjóðarmorðsins í Rúanda

Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá norsku lög­regl­unni verður mað­ur­inn fram­seldur til Rúanda þar sem hann verður dreg­inn fyrir dom vegna þátt­töku hans í þjóð­ar­morð­inu.

Noregur framselur mann vegna þjóðarmorðsins í Rúanda
Ljós­myndir af litlum hluta þeirra fjöl­mörgu sem lét­ust í þjóð­ar­morð­inu í Rúanda. Mynd: EPA

Dóms­mála­yf­ir­völd í Noregi hafa sam­þykkt að fram­selja mann sem er eft­ir­lýstur af yfir­völdum í Rúanda vegna meintrar þátt­töku hans í þjóð­ar­morð­inu sem þar átti sér stað árið 1994.

Það ár voru um 800 þús­und Tútsar og and­stæð­ingar þjóð­ar­morðs­ins úr hópi Hútúa drepnir á 100 dögum í þjóð­ar­morði sem hófst eftir að for­seti Rúanda, Juvenal Habya­rim­ana, var myrtur.

Maðurinn, sem ekki hefur verið nafn­greindur, var hand­tek­inn í októ­ber 2022 af glæpa­rann­sókn­ar­deild norsku lög­regl­unnar, Kripos. Samkvæmt yfir­lýs­ingu Kripos var mað­ur­inn eft­ir­lýstur fyrir að „hafa framið morð í þjóð­ar­morð­inu árið 1994.“

Hér­aðs­dómur í Ósló úrskurð­aði í sept­em­ber 2023 að skil­yrði fyrir fram­sali væru upp­fyllt, og var sá dómur stað­festur af áfrýj­un­ar­dóm­stól í apríl 2024. Maðurinn áfrýj­aði þá til Hæsta­réttar Noregs sem hafn­aði beiðn­inni í júní á síð­asta ári.

Eftir að allar laga­legar leiðir hans höfðu verið tæmdar, ákvað dóms­mála­ráðu­neytið í febr­úar að fram­sal gæti farið fram, og var sú ákvörðun að lokum stað­fest af Rík­is­ráð­inu.

„Sá ákærði verður nú fram­seldur til Rúanda, þar sem hann verður dreg­inn fyrir dóm fyrir þátt­töku í þjóð­ar­morð­inu,“ sagði lög­reglu­full­trú­inn Thea Elise Kjaeraas í yfir­lýs­ingu.

Norsk yfir­völd hafa á síð­ustu árum tekið við fjölda beiðna um fram­sal vegna þjóð­ar­morðs og er eitt af um sex vest­rænum löndum þar sem dóm­stólar hafa fellt dóma í slíkum málum frá árinu 2009.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár