ESB vill ný geimlög til að minnka rusl og efla iðnaðinn

ESB leggur til sam­ræmd geim­lög til að draga úr geim­rusli, auka öryggi og efla sam­keppn­is­hæfni geim­iðn­að­ar­ins. Regl­urnar kveða á um förgun gervi­hnatta, net­ör­yggi og umhverf­is­á­hrif og munu gilda bæði innan ESB og fyrir erlenda þjón­ustu­að­ila.

ESB vill ný geimlög til að minnka rusl og efla iðnaðinn
Út í geim Gert er ráð fyrir að um 50 þús­und gervi­tunglum verði skotið á braut um jörðu á næstu tíu árum. Fyrir eru þar um 11 þús­und gervi­tungl. Mynd: NASA

Evr­ópu­sam­bandið hefur lagt fram á ætlun sem fjallar um allt frá því að draga úr geim­rusli sem safn­ast hefur fyrir á braut um jörðu og yfir í að vernda gervi­hnetti gegn netárásum. Áætlunin gengur út á að að sam­ræma lög innan sam­bands­ins um geim­inn og efla sam­keppn­is­hæfni evr­ópsks geim­iðn­aðar.

Áhugi einka­að­ila á geimnum hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum, en Evrópa á í vök að verj­ast gagn­vart keppi­nautum sínum í Banda­ríkj­unum og Kína. Samkvæmt fram­kvæmda­stjórn ESB má hluta skýr­ing­ar­innar rekja til þess að innan sam­bands­ins gilda ólík lög eftir aðild­ar­ríkjum, sem gerir starf­semi fyr­ir­tækja erf­ið­ari innan 27 ríkja sam­bands­ins.

Sem stendur hafa tólf aðild­ar­ríki sett lag­ara­mma um geim­starf­semi og eitt til við­bótar vinnur að slíku, sagði Andrius Kubilius, fram­kvæmda­stjóri geim­mála hjá ESB. 

„Þessi sundr­ung er slæm fyrir atvinnu­lífið, slæm fyrir sam­keppn­is­hæfni okkar og slæm fyrir fram­tíð Evrópu í geimnum,“ sagði Kubilius við kynn­ingu á áformum fram­kvæmda­stjórn­ar­innar í …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár