Air India segir vélinni hafa verið „vel viðhaldið“ fyrir slysið

Air India segir að Boeing-vélin sem fórst í Ahmeda­bad hafi fengið gott við­hald og engin bilun greinst fyrir flugið. Rannsókn stendur yfir en enn er óljóst hvað olli slys­inu.

Air India segir vélinni hafa verið „vel viðhaldið“ fyrir slysið
Stórslys Að minnsta kosti 265 lét­ust, bæði um borð og á jörðu niðri, þegar flug­vélin hrap­aði skömmu eftir flug­tak. Mynd: Punit PARANJPE / AFP

Flug­fé­lagið Air India segir Boeing-vél sína hafa verið „vel við­haldið“ áður en hún fórst fyrir viku, en aðeins einn af 242 um borð lifði slysið af. 

Indversk yfir­völd hafa enn ekki greint frá því hvað olli því að Boeing 787-8 Dream­liner-vélin fórst í borg­inni Ahmeda­bad í vestri lands­ins. Þar lét­ust einnig að minnsta kosti 38 manns á jörðu niðri.

Á meðan rann­sak­endur vinna að því að ná í gögn úr svoköll­uðum svörtum kössum vél­ar­innar — tal­rit­anum úr flug­stjórn­ar­klef­anum og flugupp­lýs­inga­rit­ara — segir Air India að engin vanda­mál hafi komið upp í vél­inni fyrir flugið.

„Vélinni var vel við­haldið og fór síð­ast í yfir­grips­mikið eft­ir­lit í júní 2023,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá flug­fé­lag­inu. „Hægri hreyf­ill vél­ar­innar var tek­inn í gegn í mars 2025 og sá vinstri skoð­aður í apríl sama ár. Bæði vélin og hreyfl­arnir voru reglu­lega vaktaðir, og engin frá­vik komu fram fyrir flugið.“

…

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár