Hefur ekki áhyggjur af fylgi Framsóknar í nýrri könnun

„Ég hef engar áhyggjur af því að við náum ekki inn í næstu kosn­ingum,“ segir Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Samkvæmt nýrri könnun Gallup missir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn alla full­trúa sína í borg­inni. Aðspurður hvort hann sjái eftir því að hafa slitið borg­ar­stjórn­ar­sam­starf­inu seg­ist Einar alls ekki sjá eftir því.

Hefur ekki áhyggjur af fylgi Framsóknar í nýrri könnun
Einar Þor­steins­son Oddviti Fram­sóknar fær ekki sæti í borg­inni í nýrri könnun. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég hef engar áhyggjur af því að við náum ekki inn í næstu kosn­ingum. Það er langt í næstu kosn­ingar, heill kosn­inga­vetur,“ segir Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrrum borg­ar­stjóri. Ný könnun sem Gallup vann fyrir Við­skipta­blaðið sýnir að Framsókn myndi missa alla fjóra borg­ar­full­trúa ef efnt væri til kosn­inga í dag. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur með 31,3 pró­sent fylgi og Sam­fylk­ingin fylgir fast á eftir með 26 pró­sent fylgi.

„Við erum auð­vitað ósátt við þessa könnun enda teljum við að Framsókn hafi sýnt borg­ar­búum að við stóðum okkur vel. Við tókum í taumana og snerum við rekstri borg­ar­innar. Við settum í gagn öfl­ugt plan í leik­skóla­málum og mörg verk­efni sem við töl­uðum um fyrir síð­ustu kosn­ingar hafa gengið betur heldur en við þorðum að vona,“ segir Einar.

„Við erum auð­vitað ósátt við þessa könnun“

Einar seg­ist vona að borg­ar­búar muni treysta Framsókn í næstu kosn­ingum sem fram fara 16. maí á næsta ári. „Ég held að kjós­endur muni sjá þegar nær dregur að kosn­ingum að Framsókn hefur haft mikil jákvæð áhrif á borg­ina. Innleitt skyn­semi og ábyrgð og von­andi verður okkur treyst aftur til verka eftir næstu kosn­ingar.“

Heim­ildin spurði hvað Einar taldi að gæti útskýrt nið­ur­stöður könn­un­ar­innar. „Ég átta mig ekki alveg á því. Ég held að ein­hverju leyti þegar kemur að ein­hverjum þess­ara flokka, end­ur­speglist staða lands­mál­anna inn í þessa könnun. En kjós­endur verða bara að svara því í næstu kosn­ingum hvað þeir vilja fyrir Reykja­vík.“ Hann bætir við að: „Ein svona könnun, þegar ár er í kosn­ingar, hún er ákveðin vís­bend­ing um það að við þurfum að koma okkar póli­tík á fram­færi – en það er það sem kemur upp úr köss­unum sem skiptir máli.“

„Við lof­uðum árangri. Við náðum miklum árangri“

Einar segir næstu skref hjá Framsókn vera að„vinna fyrir borg­ar­búa og koma í veg fyrir að rót­tækur vinstri meiri­hluti tefli í tví­sýnu þeim árangri sem hafði náðst.“ Hann bætir við: „Þótt það sé stutt í kosn­ingar er heill kosn­inga­vetur framundan. Margt getur breyst.“

Engin eftirsjá að meirahlutaslitunum

Aðspurður hvort hann sjái eftir því að hafa slitið meiri­hluta­sam­starf­inu í febr­úar síð­ast­lið­inn segir Einar alls ekki sjá eftir því: „Með því sýndum við kjós­endum að við erum trú þeim sem að kjósa okkur. Við lof­uðum árangri. Við náðum miklum árangri með rekstur og margt í hús­næð­is­málum. Sunda­braut og fleiri stór verk­efni.“ Hann bætir við: „Þegar kom að öðrum rót­tæk­ari breyt­ingum náðum við því ekki fram í gegnum sam­starf við þessa flokka og þá er betra að reyna að efna lof­orð gagn­vart kjós­endum með því að mynda nýjan meiri­hluta.“

 „Kjós­endur mega vita það að við förum ekki í sam­starf nema við teljum okkur geta knúið fram þau áherslu­mál sem við erum að berj­ast fyrir,“ segir Einar.

Heim­ildin spurði Einar út í þær við­ræður sem urðu í kjöl­far stjórn­ar­slit­anna. „Ég hefði viljað að þau hjá Flokki fólks­ins hefðu staðið við það sem þau sögðu þegar við hófum meiri­hluta­við­ræður. Borgin væri á miklu betri stað ef við hefðum náð að mynda þannig meiri­hluta,“ segir Einar.

Einar segir að ekki þýði að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn. „Núna er tæpt ár í kosn­ingar og við ætlum að sinna öfl­ugu aðhaldi og koma í veg fyrir það að þessi rót­tæki vinstri-meiri­hluti vinni ekki mikið tjón á rekstri borg­ar­innar sem var loks­ins kom­inn í plús.“ Segir Einar að Framsókn ætli að „tryggja að eftir næstu kosn­ingar sé hægt að mynda meiri­hluta sem byggir á skyn­semi og ábyrgð­ar­til­finn­ingu en ekki ein­hverri til­rauna­mennsku.“

Einar segir að skaut­unar gæti í borg­inni og að ábyrgð og skyn­semi hljóti ekki hljóm­grunn en hann telur að lausn­irnar sé að finna á miðj­unni. „Póli­tíkin í borg­inni virð­ist alltaf leita í sama far skaut­unnar,“ segir hann og bætir við: „Lykill að vel­ferð borg­ar­innar felst ekki í rót­tæku öfga­hægri eða öfga­vinstri.“

Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár