Milljón króna dagsektir: Gagnabeiðnin sem SVEIT neitar að svara

Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði kæra þá ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að leggja á sam­tökin milljón króna dag­sektir. Þau neita að afhenda gögn sem til­greind eru í fimm liðum.

Milljón króna dagsektir: Gagnabeiðnin sem SVEIT neitar að svara
Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lit­is­ins. Mynd: Heida Helgadottir

Sam­keppn­is­eft­ir­litið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði (SVEIT) hafi van­rækt óví­ræða laga­skyldu um afhend­ingu gagna og brotið þar með gegn sam­keppn­is­lögum. Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað í gær að leggja dag­sektir á sam­tökin vegna umræddra brota og sam­kvæmt ákvörð­un­inni skal SVEIT greiða milljón króna í dag­sektir þar til umbeðin gögn hafa verið afhent eft­ir­lit­inu. 

SVEIT hefur hins vegar til­kynnt að þau muni kæra þessa ákvörðun, sem þau mót­mæla harð­lega og verða engar sektir lag­aðar á sam­tökin þar til nið­ur­staða áfrýj­un­ar­nefndar liggur fyrir um afhend­ingu gagn­anna.

Forsagan er sú að þann 14. mars 2025 barst Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu kvörtun Alþýðu­sam­bands Íslands, Eflingar-Stétt­ar­fé­lags og Starfs­greina­sam­bands Íslands vegna „ólög­mæts verð­sam­ráðs fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði og ólög­mæts verð­sam­ráðs innan Samtaka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði“.

SVEIT hefur hins vegar ítrekað hafnað kröfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um afhend­ingu gagna.

Þar er því haldið fram að gerð SVEIT á ein­hliða kjara­samn­ingi við félagið Virðingu, þar …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Það er alveg sama í hvaða SVEIT menn eru staddir, þar er verið að brjóta reglu og réttlætið. Menn geta það og þess vegna gera þeir það. Ég á. Ég má Farðu frá!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár