Kína og Bandaríkin nálgast samkomulag eftir spennuþrungnar viðræður í London

„Við erum að hreyfa okkur eins hratt og við getum,“ segir banda­ríski við­skipta­full­trú­inn Jamieson Greer, en báðir aðilar lýstu vilja til að draga úr við­skipta­spennu. Kína lofar auknu sam­starfi og Banda­ríkin boða mild­ari aðgerðir ef útflutn­ings­leyfi verða veitt hraðar. Engin dag­setn­ing hefur þó verið ákveðin fyrir næstu við­ræður.

Kína og Bandaríkin nálgast samkomulag eftir spennuþrungnar viðræður í London
Unnið er að því að ná sam­komu­lagi milli Xi Jinpin og Donald Trump Mynd: AFP

Vara­for­sæt­is­ráð­herra Kína segir stjórn­völd í Peking reiðu­búin til að „efla sam­starf“ við Banda­ríkin eftir við­ræður í London sem hafi skilað veru­legum árangri, að sögn kín­verskra miðla.

Howard Lutnick, við­skipta­ráð­herra Banda­ríkj­anna, lýsti yfir bjart­sýni eftir heilan dag af við­ræðum og sagð­ist telja að áhyggjur vegna sjald­gæfra málma og segla myndu „leys­ast“ þegar sam­komu­lagið tæki gildi.

Sam­komu­lagið þarf þó enn að hljóta sam­þykki leið­toga beggja ríkja, bæði í Washington og Peking, sam­kvæmt emb­ætt­is­mönnum sem ræddu við fjöl­miðla í lok við­ræðn­anna sem fóru fram í hinni sögu­frægu Lancaster House-bygg­ingu í London.

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkti um nið­ur­stöður við­ræðn­anna þar sem báðir aðilar reyndu að brúa bilið vegna útflutn­ings­tak­mark­ana. Banda­rísk stjórn­völd höfðu áður sakað Peking um að tefja útgáfu leyfa fyrir útflutn­ing sjald­gæfra málma. Tvö stærstu hag­kerfi heims reyna nú einnig að ná var­an­legri sátt í vax­andi tolla­stríði, en tolla­að­gerðir eru sem stendur settar í bið.

„Við erum að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár