Thunberg segir siðferðislega ómögulegt að verja Ísrael

Greta Thunberg ræddi við blaða­menn á Charles de Caulle flug­vell­inum í dag en Ísra­els­her hand­tók hana og áhöfn Madleen sem var á leið til Gasa­svæð­is­ins með mat­væli og hjálp­ar­gögn á aðfara­nótt mánu­dags. Thunberg segir: „Sama hverjar lík­urnar eru þá verðum við að halda áfram að reyna“ og kallar eftir afnámi her­náms Ísraels í Palest­ínu.

Thunberg segir siðferðislega ómögulegt að verja Ísrael
Greta Thunberg Mynd: Albin Haglund

Tólf aðgerð­ar­sinnar sem voru um borð í bátnum Madleen voru stöðv­aðir af ísra­elska hernum aðfara­nótt mánu­dags á alþjóð­legu haf­svæði í Mið­jarð­ar­haf­inu.

Báturinn var á vegum Freedom Flotilla Coalition og var á leið sinni til Gasa með mat­væli og hjálp­ar­gögn en Ísrael hefur hleypt mjög tak­mark­aðri neyð­ar­að­stoð inn á svæðið síðan í mars.

Áhöfnin var færð í varð­hald í borg­inni Ashdod og hafa yfir­völd í Ísrael nú haf­ist handa við að senda hana úr landi. Á meðal áhafn­ar­með­lima var lofts­lags­að­gerðasinn­inn Greta Thunberg sem nú er á leið sinni til Sví­þjóðar en hún milli­lent í París í dag og ræddi við blaða­menn á Charles de Gaulle flug­vell­inum.

GasaFólk bíður í örvænt­ingu eftir mat­ar­að­stoð

„Verðum að halda áfram að reyna“

Thunberg sagði að áhöfnin á Madleen hefði verið ólög­lega numin á brott af Ísrael þar sem þau voru sett í varð­hald og að sum þeirra sé búið að senda úr landi en að önnur séu ennþá í Ísrael. Spurð út í þær aðstæður sem henni hefði sjálfri verið haldið í sagði Thunberg: „Ekki neitt í sam­an­burði við það sem fólk þarf að þola í Palest­ínu og sér­stak­lega í Gasa þessa stund­ina.“ Einnig sagði hún við blaða­menn að fréttin væri ekki að áhöfnin hefði verði hand­tek­inn. „Raun­veru­lega fréttin er sú að þjóð­ar­morð sé í gangi á Gasa og kerf­is­bundin hung­ursneyð vegna umsát­urs og þess að heftur sé aðgangur á mat, lyfjum og vatni sem þurfi nauð­syn­lega að kom­ast inn á Gasa.“ Hún bætti við að margar aðgerðir séu í gangi til þess að koma nauð­synjum inn á Gasa­svæðið.  

Spurð út í aðgerðir Ísraels gagn­vart Madleen áhöfn­inni segir Thunberg að á Madleen hafi verið frið­sælir sjálf­boða­liðar og að „þau hafi ekki brotið lög eða gert neitt rangt.“ Hún segir að í Ísrael hafi áhöfn­inni verið haldið aðskildri og að hún hafi ekki getað talað við eða hitt aðra áhafn­ar­með­limi en viti þó að það hafi verið vandi fyrir sum að fá lög­fræði­að­stoð. Thunberg seg­ist hafa skrif­aði undir yfir­lýs­ingu, sem sum í áhöfn­inni gerðu einnig, sem sneri að því að kom­ast heim eins fljótt og auðið var en segir að hún hafi ekki sam­þykkt að hafa komið ólög­lega inn í Ísrael. Önnur í áhöfn­inni hafi ekki viljað skrifa undir. Hún seg­ist hafa áhyggjur af þeim áhafn­ar­með­limum og kallar eftir því að þau verið leyst úr haldi strax. 

Aðspurð af hverju yfir­völd víða um heim hunsi það sem eigi sér stað á Gasa segir Thunberg að ástæðan sé kyn­þátta­hatur og að það sé verið að reyna að verja kerfi hag­vaxtar og land­fræði­legs valds á kostnað mann­fólks og jarð­ar­innar sem hún segir „sið­ferð­is­lega ómögu­legt að verja.“

Þrátt fyrir erf­iða stöðu er bar­áttu­andi í Thunberg: „Sama hverjar lík­urnar eru þá verðum við að halda áfram að reyna.“ Hún segir að þó svo að auð­velt sé að finna fyrir til­gangs­leysi þegar rýnt sé í stöðu heims­mál­anna þurfi fólk að gera allt sem það geti. „Annars missum við von­ina,“ segir hún. 

Thunberg krefst „vopna­hlés, og það sem mik­il­væg­ast er, afnám her­náms­ins og kerf­is­bundnu kúg­un­ar­innar og ofbeld­is­ins sem Palest­ínu­menn þurfa að búa við dag­lega.“ 

Ráðist á Madleen

Thiago Ávila, einn áhafn­ar­með­lima, deildi á sam­fé­lags­miðlum á aðfara­nótt mánu­dags mynd­skeiði þar sem hann greindi frá því að flygildi svifu yfir bátnum og skrif­aði: „ÞAÐ ER VERIÐ AÐ RÁÐAST Á OKKUR!!!!“ Á Instagram-reikn­ingi Gaza Freedom Flotilla var síðar birt mynd­skeið þar sem áhöfnin er beðin um að halda höndum á lofti á meðan ísra­elskir her­menn skipa þeim fyrir. Í færsl­unni er vitnað í Huwaida Arraf, mann­rétt­inda­lög­fræð­ing og einn af skipu­leggj­endum Freedom Flotilla, sem segir að Ísrael hafi ekki laga­leg völd til þess að hand­taka alþjóð­lega sjálf­boða­liða um borð en bát­ur­inn var stað­settur á alþjóð­legu haf­svæði í Mið­jarð­ar­haf­inu. 

Í kjöl­far þess að Madleen var stöðvað birt­ust fyr­ir­fram tekin mynd­bönd af áhöfn­inni þar sem þau lýstu því yfir að þeim hefði verið rænt af ísra­elska hernum eða öðrum aðilum sem styðja Ísrael, á alþjóð­legu haf­svæði. Hvöttu þau fólk til þess að þrýsta á yfir­völd ríkj­anna — sem þau eru rík­is­borg­arar í — til þess að koma þeim til aðstoðar.

Ísrael fordæmt

Aðgerðir Ísra­els­hers hafa vakið hörð við­brögð meðal almenn­ings og log­uðu netheimar á meðan áhöfn Madleen og skipu­leggendur Freedom Flotilla Coalition deildu því sem fram fór. Ríki og sam­tök hafa for­dæmt aðgerð­ina en á meðal þeirra eru yfir­völd Hamas á Gasa­svæð­inu sem kalla aðgerð­ina: „Gróft brot á alþjóða­lögum.“ Yfirvöld í Bret­landi lögðu áherslu á það að virða þyrfti alþjóð­leg mann­rétt­indi og Francesca Albanese, sér­stakur full­trúi Sam­ein­uðu þjóð­anna í mál­efnum Palest­ínu, for­dæmdi aðgerð­irnar sem hún kall­aði ólög­legar. 

Ísra­els­her var einnig for­dæmdur fyrir að deila mynd­skeiði á sam­fé­lags­miðla þar sem her­menn sjást deila vatni og sam­lokum til áhafnar Madleen. Thunberg var spurð út í gjörn­ing­inn þegar hún hitti blaða­menn í París og sagði að lík­legt væri að Ísrael væri með ein­hverjar „almanna­tengsla-brellur“ en að hún væri ekki búin að sjá myndir eða mynd­skeið síðan hún losn­aði úr haldi. 

Túnis leiðir bílalest til Gasa

Eins og Thunberg bendir á eru fleiri aðgerðir yfir­stand­andi með það að mark­miði að koma neyð­ar­að­stoð inn á Gasa­svæðið. Þúsundir manns hafa nú tekið saman höndum og ferð­ast saman í bíla­lest frá Tún­isborg til Gasa í gegnum Egypta­land. Leið­ang­ur­inn er kall­aður Sumud sem þýðir seigla á arab­ísku. 

Ferða­lagið hófst í gær, 9. júní, í kjöl­far þess að Ísra­els­her hand­tók áhöfn Madleen. Mark­miðið bíla­lest­ar­innar er að setja pressu á Egypta­land til þess að opna landa­mæri sín við Rafah og þannig koma neyð­ar­að­stoð að til íbúa á Gasa­svæð­inu. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár