Gæsluvarðahald aftur framlengt yfir Margréti Löf

Margrét Löf hefur verið í gæslu­varð­haldi í á átt­undi viku, síðan hún var hand­tekin grunuð um að hafa orðið föður sínum að bana.

Gæsluvarðahald aftur framlengt yfir Margréti Löf
Fólkið bjó á Arn­ar­nesi í Garðabæ Mynd: Golli

Gæslu­varð­hald yfir Margréti Löf var í dag fram­lengt um fjórar vikur, eða til 1. júlí. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var það gert vegna almanna­hags­muna. Gæslu­varð­hald hennar hefur áður verið fram­lengt á grund­velli almanna­hags­muna en þar áður var hún í varð­haldi vegna rann­sókn­ar­hags­muna. 

Margrét var hand­tekin grunuð um að hafa banað föður sínum þann 11. apríl. Það eru því rúmar sjö vikur síðan hún var upp­haf­lega úrskurðuð í gæslu­varð­hald og verður það í rúmar 11 vikur sam­kvæmt þessum nýjasta úrskurði.

Heim­ildin greindi frá því lok apríl að Margrét neit­aði sök en hafi þó geng­ist við atvika­lýs­ingum að hluta. Þá hafi hún enn­fremur sagt að hún hafi ekki verið nálægt föður sínum þegar hann dó.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Hvaða almannahagsmuni er átt við? Á þessi stúlka að vera hættuleg umhverfi sínu? Hér liggur einhver fiskur undir steini.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár