Ég vil byrja á því að þakka fyrir ótrúlegt magn af stuðningskveðjum sem mér hafa borist. Mér þykir gríðarlega vænt um að almenningur upplifi sterkt að ég láti mig það varða að Fjalar, gæluapinn minn, drekki sig fullan og kveiki reglulega í leikskólum, og vilji að ég beiti mér til fulls við að leysa leikskólavandann.
Ég hef líka mikinn skilning á ákallinu um að ég beiti mér fyrir því sem sumir kalla raunverulegar aðgerðir. Hlutirnir hreyfast hægt í sambandi manns við alkóhólískan simpansa og það er akkúrat þess vegna sem ég get ekki vísað Fjalari út. Sérstaklega ekki við sem viljum aðstoða þau sem eru að brenna inni hverju sinni.
Það myndi líka draga úr vægi kvörtunarbréfs míns til mannsins sem seldi mér Fjalar, undir þeim formerkjum að hann myndi hvorki kveikja í leikskólum né væri ásækinn í búlgarskt hvítvín.
Varðandi kæru Jóhönnu, í íbúð 203, til Dýraþjónustu Reykjavíkur (DÝR), vil ég segja að enginn á minni hæð hefur kært sig inn í það mál. Böðvar í íbúð 102 og Nonni, sem reyndar er bara leigjandi, hafa sent DÝR bréf og spurningar en taka þar enga afstöðu með eða á móti Fjalari, apanum mínum.
Það er grundvallarafstaða mín að virða niðurstöðu DÝR og að Fjalar virði bráðabirgðaniðurstöðu þeirra.
Núna er mikilvægast að einblína á aðgerðir sem við teljum að hafi raunveruleg áhrif, þ.m.t. samtal við aðra á fimmtu hæðinni um að auka pressu á Fjalar, apann minn, að snúa af þessari vegferð og virða landslög.
Öll skref af minni hálfu eru tekin með hagsmuni brennandi barna og stöðu minnar sem öflugrar raddar í húsfélaginu að leiðarljósi.
Athugasemdir