Andófsmenn skipa öll sæti framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins

Öll nýkjörin fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins var á hinum svo­kall­aða tossa­lista sem dreift var fyrir aðal­fund flokks­ins af þeim sem studdu hall­ar­bylt­ingu. Sund­ur­lið­aðar nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru birtar í morgun.

Andófsmenn skipa öll sæti framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins
Aðal­fundur Sós­í­alista­flokks­ins var hald­inn í hús­næði flokks­ins í Bolholti um helg­ina. Mynd: Golli

Gríð­ar­legar svipt­ingar urðu um helg­ina á stjórn Sós­í­alista­flokks­ins þar sem hópur fólks úr gras­rót­inni bauð sig fram til höf­uðs þeim sem höfðu farið með völd í flokknum síð­ast­liðin ár. Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi flokks­ins og for­maður fram­kvæmda­stjórnar til átta ára, hlaut ekki kjör í fram­kvæmda­stjórn.

Á aðal­fund­inum var meðal ann­ars kosið í fram­kvæmda­stjórn, mál­efna­stjórn og kosn­inga­stjórn. Um ein­stak­lings­kjör var að ræða en mik­ill hiti var í flokks­mönnum fyrir fund­inn. Þannig var svoköll­uðum tossa­lista – „Leið­bein­ingum til að styðja við gras­rót­ar­end­ur­reisn Sós­í­alista­flokks­ins“ – dreift fyrir fund­inn. 

Þar kom fram að „mik­il­væg­ast“ á dag­skránni væri kosn­ing í stjórn­irnar. Síðan voru birt nöfn þeirra sem æski­legt væri að kjósa, fyrir þá sem styddu end­ur­reisn gras­rót­ar­innar. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn birti sund­ur­lið­aðar nið­ur­stöður á vef sínum í morgun þar sem má sjá í heild sinni þá sem náðu kjöri í stjórn­irnar og í hvaða röð. Athygli vekur hversu líkir þeir eru áður­nefndum lista. 

Níu full­trúar voru kjörnir í fram­kvæmda­stjórn sem aðal­stjórn­ar­menn:

  1. Bergljót Tul Gunn­laugs­dóttir
  2. Guð­bergur Egill Eyj­ólfs­son
  3. Hall­fríður Þór­ar­ins­dóttir
  4. Hjálmar Frið­riks­son
  5. Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son
  6. Karl Héðinn Krist­jáns­son
  7. Sæþór Benjamín Randals­son
  8. Sigrún Unn­steins­dóttir
  9. Þor­valdur Þor­valds­son

Fjórir full­trúar voru kjörnir í fram­kvæmda­stjórn sem vara­menn í stjórn:

  1. Marzuk Ingi Lamsiah Svan­laugar
  2. Rósa Guðný Arn­ar­dóttir
  3. Sigurjón Ármann Björns­son
  4. Sigurrós Egg­erts­dóttir

Listi and­ófs­manna sem var dreift

Allir sem náðu kjöri sem aðal­menn í mál­efna­stjórn eru á ofan­greindum lista og í sömu röð, en röðun vara­manna er önnur. Þá eru efstu tvær á ofan­greindum lista sam­hljóða end­an­legum nið­ur­stöðum, en annað fólk á list­anum náði kjöri þó röð þeirra sé önnur.

Kosn­inga­stjórn var sömu­leiðis skipuð öllum þeim aðal­mönnum sem and­ófs­menn höfðu mælt með að yrðu kjörnir. 

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi og for­seti borg­ar­stjórnar, hlaut kjör sem póli­tískur leið­togi flokks­ins en hún sagði sig hins vegar af sér því emb­ætti eftir að nið­ur­stöð­urnar voru ljósar: „Í ljósi aðdrag­and­ans að þeim breyt­ing­unum sem síðar urðu á aðal­fundi Sós­í­alista­flokks Íslands hef ég tekið þá ákvörðun að segja mig frá trún­að­ar­störfum í innra starfi flokks­ins. Ég verð áfram skráð í flokk­inn og mun beina öllum mínum kröftum að starfi mínu sem odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins. Mitt helsta mark­mið í líf­inu er að vinna gegn efna­hags­legu órétt­læti,“ skrif­aði hún á Facebook í kjöl­farið. 

Hinn listinn

Sanna hefur stutt Gunnar Smára og birti hún á Facebook-síðu sinni fyrir aðal­fund­inn lista yfir hvernig hún myndi kjósa. Báðar fylk­ingar höfðu því dreift nafna­listum með „sínu fólki.“

Hér er list­inn yfir þá sem Sanna sagð­ist ætla að kjósa í fram­kvæmda­stjórn:

1. Sara Stef Hildar

2. Kári Jónsson

3. Gunnar Smári Egilsson

4. Margrét Pét­urs­dóttir

5. Laufey Líndal Ólafs­dóttir

6. Jón Hallur Har­alds­son

7. Ragn­heiður Guð­munds­dóttir

8. Þor­steinn Bergsson

9. Hákon Leifsson

Til vara:

1. Kolbrún Valv­es­dóttir

2. Luciano Dutra

3. Haraldur Ingi Har­alds­son

4. Védís Guð­jóns­dóttir

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BÞS
    Bessi Þór Sigurðarson skrifaði
    Maður veit nú sáralítið um nokkurt þeirra sem nú mynda stjórnina; og hvað annað einkennir þau en gremja í garð þeirra sem hafa haft völdin innan flokksins. Framtíðin er óviss.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár