Braut ítrekað nálgunarbann - Grunaður um ofbeldi gegn eiginkonu og fimm börnum

Karl­maður hefur verið úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald vegna ásak­ana um alvar­legt ofbeldi gegn eig­in­konu og börnum. Maðurinn hefur verið til rann­sóknar hjá lög­reglu síðan í fyrra en hann hlaut alþjóð­lega vernd á Íslandi árið 2022. Ef brotin verða talin sönnuð geta þau varðað allt að 16 ára fang­elsi.

Braut ítrekað nálgunarbann - Grunaður um ofbeldi gegn eiginkonu og fimm börnum

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur úrskurðað mann í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald til 3. júní vegna alvar­legra ásak­ana um ofbeldi gegn eig­in­konu sinni og börnum þeirra. Maðurinn, sem hlaut alþjóð­lega vernd á Íslandi árið 2022, hefur verið til rann­sóknar hjá lög­reglu síðan í mars 2024 og sætt nálg­un­ar­banni gagn­vart fjöl­skyldu sinni. Þá hafði lög­reglu borist til­kynn­ing um að mað­ur­inn hafi hótað eig­in­konu sinni líf­láti. 

Í grein­ar­gerð lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum kemur fram að mað­ur­inn sé undir rök­studdum grun um að hafa beitt eig­in­konu sína lík­am­legu og and­legu ofbeldi um ára­bil, bæði áður en þau komu til Íslands og eftir það. Hann er jafn­framt grun­aður um að hafa beitt nokkur barna sinna kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Flúði ofbeldið stuttu eftir komuna

Fram kemur í lýs­ingu á máls­at­vikum að hjónin og börn þeirra fimm hafi komið til Íslands í mars 2024 en eig­in­konan flúið heim­ilið í sama mán­uði. Börnin voru í kjöl­farið tekin af mann­inum og færð til móð­ur­innar. Þau hafi notið aðstoðar félags- og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem og dvalið í Kvenna­at­hvarf­inu.

„Það er mat lög­reglu að ætla megi að varn­ar­að­ili muni halda áfram brotum meðan mál hans er ekki lokið,“ segir í kröfu­gerð sak­sókn­ara. Þar kemur einnig fram að brota­þolar séu „afar hræddir við varn­ar­að­ila“ og að væg­ari úrræði, eins og nálg­un­ar­bann, hafi ekki dugað til að vernda þau.

„Að mati sókn­ar­að­ila eru væg­ari úrræði full­reynd“
Úr kröfu lög­reglu vegna gæslu­varð­halds

Samkvæmt dóms­skjölum hefur mað­ur­inn ítrekað brotið gegn nálg­un­ar­banni, meðal ann­ars með því að birt­ast við heim­ili og skóla barna sinna, senda hót­anir í gegnum sam­fé­lags­miðla og reyna að ná sam­bandi við fjöl­skyld­una með ýmsum hætti. Í einum lið máls­ins kemur fram að hann hafi mætt fyrir utan heim­ili brota­þola og öskrað eftir henni, skömmu eftir að hafa fyrr sama dag sent hót­anir um að hún hefði „klukku­stund til að taka efni niður af sam­fé­lags­miðlum ann­ars ætli hann að láta til skarar skríða, taka stóra ákvörðun og hann hafi engu að tapa,“ eins og það er orðað í úrskurði hér­aðs­dóms.

Barnaníðsefni í tækjum mannsins

Við leit í bíl manns­ins fund­ust hnífur, klauf­hamar, einnota hanskar og striga­lím­band. Þá komu við rann­sókn á raf­rænum tækjum í hans eigu fram myndir sem telj­ast til barn­a­níðs­efnis, auk grófs kláms.

Verjandi manns­ins mót­mælti kröfu lög­reglu og benti á að hann hefði ekki brotið gegn nálg­un­ar­banni meðan hann væri í gæslu­varð­haldi, þrátt fyrir að hafa aðgang að síma og neti. Þá neitar mað­ur­inn sök og segir ásak­an­irnar koma frá eig­in­konu sinni sem hann seg­ist ekki vilja meiða.

Dómurinn hafn­aði þó vörnum hans og vís­aði meðal ann­ars til úrskurða Lands­réttar þar sem fram kom að ætla mætti að mað­ur­inn héldi áfram brotum gengi hann laus. „Þykir því enn verða að leggja til grund­vallar [...] að ætla megi að varn­ar­að­ili muni halda áfram brotum gangi hann laus á þessu stigi,“ segir í nið­ur­stöðu dóms­ins.

„Að mati sókn­ar­að­ila eru væg­ari úrræði full­reynd,“ segir í kröfu lög­reglu vegna gæslu­varð­halds­ins.

Lög­reglan hefur jafn­framt lagt fram kröfu um geð­rann­sókn, sem þegar hefur verið sam­þykkt af dóm­stólum.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GOR
    Gunnar Oddur Rósarsson skrifaði
    Við erum sjálf okkur nóg með skemmda einstaklinga. Það er óráð að flytja þá inn. Enda innviðir frumstæðir vegna alltumlykjandi "fjármagnsskorts".
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár